Fiskasýning Hafró
🐟 Fiskasýning Hafrannsóknastofnunar á Háabakka 📍 Fyrir framan Hafrannsóknastofnun 📅 Sunnudaginn 7. júní 🕐 Frá kl. 13:00 til 17:00 Komdu…
Sunnudaginn 7. júní verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði með fjölbreyttri dagskrá sem heiðrar sjómenn og tengsl bæjarins við sjóinn.
Já, Hafnarfjarðarbær hefur skorað á hvert hverfi fyrir sig að taka þátt í kappróðrinum þetta árið. Hvaða hverfi býr yfir öflugustu ræðurunum? Hvaða skipstjóri kemur fleyi sínu fyrst í höfn?
Sjómannadagurinn er hlaðinn kræsingum þetta árið sem fyrr:
Já, það er margt í boði og vert að skipuleggja sig svo dagurinn verði fullkominn:
Morgunviðburðir
Kl. 8:00 – Fánar dregnir að húni á hátíðarsvæði við höfnina.
Kl. 10:00 – Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu.
Kl. 10:30 – Blómsveigur lagður að minnisvarða sjómanna við Víðistaðakirkju.
Kl. 11:00 – Sjómannadagsmessa í Víðistaðakirkju
Herjólfsgufan við Langeyrarmalir – Gufa og sjór í fullkomnu jafnvægi frá kl. 10:00 til 13:00.
Dagskrá við höfnina milli kl. 13:00–17:00
Kappróður – Spennandi keppni á höfninni frá kl. 13:00 til 14:00.
Sterkasti maður Íslands – Kraftakeppni við hafnarsvæðið frá kl. 13:00 til 16:00.
Skemmtisigling – Sigling í boði Hafnarfjarðarhafnar frá Óseyrarbryggju kl. 13:00–16:30.
Fiskasýning Hafró – Skoðaðu fjölbreytt lífríki sjávar við Háabakka.
Siglingaklúbburinn Þytur – Opið hús frá kl. 13:00 – 17:00 hjá klúbbnum við Strandgötu 88.
Kaffihlaðborð Kænunnar – Njóttu veitinga í Kænunni við höfnina.
Björgúlfur kallar – Kaffi, kökur og koddaslagur við Flensborgarhöfn.
„Viltu koma í sjómann?“ – Kraftakeppni við minnismerkið um veru Þjóðverja í Hafnarfirði.
Þyrla landhelgisgæslunnar – Björgunarsýning Landhelgisgæslunnar
Slökkviliðið við Fornubúðir með bíla og búnað frá kl. 13:30 – 15 – komdu og heilsaðu hetjunum okkar! Björnis mætir einnig á svæðið en hann verður á Sjómannasviðinu kl.15!
Skemmtidagskrá á Sjómannasviðinu frá kl. 13 – 16:30
Kl. 13:00 – 🎸 DAS-bandið
Kl. 13:30 – 🎺 Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Kl. 14:00 – 🧑✈️ Setning hátíðarinnar og heiðrun Sjómanna
Kl. 14:15 – 🎤 Hreimur tekur lagið
Kl. 14:30 – 💃 Dans Brynju Péturs!
Kl. 14:45 – 🏆 Verðlaunaafhending í kappróðri
Kl. 15:00 – 🐻 Björnis brunabangsi
Kl. 15:10 – 🎙️ Diljá Pétursdóttir
Kl. 15:30 – 🎤 Nice guys
Kl. 15:40 – 🎭 Ragga Hólm
Kl. 16:00 – 🌊 VÆB
Verslun, sýningar og menning
Veitingastaðir í næsta nágrenni – Fullt af kræsingum á Sjómannadaginn!
Ekki þarf að leita langt – aðeins steinsnar frá hátíðarsvæðinu á Sjómannadaginn bíða þín þín frábærir veitingastaðir við Strandgötu 75, þar sem hægt er að njóta veitinga við allra hæfi:
☕️ Pallett kaffi – Heitt kaffi, ferskar kökur og afslappað andrúmsloft. Fullkomið fyrir hressingu yfir daginn. Opið frá 11:00–17:00.
🍕 Sydhavn-Figo – Létt og lifandi stemming með dásamlegum ítölskum réttum og drykkjum. Opið frá 11:30–23:00.
🍽 Von mathús – Glæsilegt kvöldverðarhús sem býður upp á vandaðan mat í notalegu umhverfi. Opið frá 17:00–21:00.
🎉 Einnig verður fjör á Fjörukránni á Sjómannadaginn þar sem við heiðrum hetjur hafsins – útisvæðið opið, happy hour og popp í boði fyrir börnin, meðan birgðir endast – velkomin frá 11:30.
Gestir eru hvattir til að leggja bílum löglega í bílastæði nálægt viðburðasvæðinu eða í miðbænum og ganga eða taka strætó, því hafnarsvæðið er lokað fyrir bílaumferð á meðan á hátíðarhöldum stendur.
Salernisaðstaða er í Siglingaklúbbnum Þyt, Íshúsi Hafnarfjarðar, Ægi 220, Kænunni, við olíubryggjuna og Hafrannsóknastofnun.
Drónaflug er bannað á hátíðarsvæðinu.
Nánari upplýsingar má finna á vef Hafnarfjarðarbæjar – hfj.is/sjomannadagur
Komdu og njóttu dagsins með fjölskyldu og vinum við höfnina í Hafnarfirði!