Fundur fyrir lóðarhafa
Fundur fyrir lóðarhafa í Sléttuhlíð verður haldinn fimmtudaginn 25. janúar 2024 kl. 16 í húsnæði umhverfis- og skipulagssviðs Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2.
Málefni fundarins:
- Nýtt deiliskipulag Sléttuhlíðar
- Lóðarleigusamningar
- Reyndarteikningar
- Rotþrær
- Önnur mál
Lóðarhafar og öll áhugasöm hvött til að mæta.