„Svalur andblær“ er heiti sýningarinar eftir Díönu Von Ancken “ Dijanah”

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudagskvöldið 13.júlí n.k. frá 18:00-20:00 og allir velkomnir!

Sýningin byggir á áhrifum mismunandi lita og litasamsetninga á tilfiningalífið. Áhrif litana opna fyrir vitrænni skynjun bæði huglægri og fagurfræðilegri jafnvel líkamlegri. Upplifunin getur verið þverfagleg og skilið eftir sig vonandi, ljúfa sælu og hamingju.

Diana stundaði nám á listabraut á unglingsárum á Vestoppland folkehogskole og þar opnaðist ástríðan fyrir myndlist. Í gegnum árin hefur hún farið á fjölda mörg námskeið í olíu, akrýl og vatnslitum ásamt teikningu og leirlist. Myndirnar á þessari sýningu eru gerðar með bleki. Diana er blues söngkona með hljómsveitinni Rætur.

Diana tekur vel á móti gestum og opnunartímar eru eftirfarandi:

fimmtudagur  18:00-20:00

föstudagur      13:00-18:00

laugardagur    12:00-17:00

sunnudagur    14:00-17:00

 

Sjá viðburð Svalur andblær | Facebook

 

Viðburðurinn er styrktur af menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.

 

 

Ábendingagátt