Sveitarstjórnarkosningar 2026
Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026 Kjörfundur í Hafnarfirði vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí nk. stendur yfir frá kl. 9 –…
Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026
Kjörfundur í Hafnarfirði vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí nk. stendur yfir frá kl. 9 – 22. Kjörstaðir eru tveir, Lækjarskóli að Sólvangsvegi 4 og Ásvellir íþróttamiðstöð. Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað.
Kjörstjórn
Yfirkjörstjórn í Hafnarfirði skipa: Þórdís Bjarnadóttir, Hildur Helga Gísladóttir og Helena Mjöll Jóhannsdóttir. Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í Lækjarskóla á kjördag á meðan á kjörfundi stendur. Eftir að kjörfundi hefur verið slitið flyst aðsetur yfirkjörstjórnar á Ásvelli íþróttamiðstöð. Talning atkvæða fer fram á Ásvöllum íþróttamiðstöð og hefst að loknum kjörfundi kl. 22. Símanúmer á kjörstöðum: Lækjarskóli – 555 0585 og Ásvellir – 525 8700.
Kosning utan kjörfundar
Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar, hjá sýslumönnum eða erlendis. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá sýslumönnum vegna sveitarstjórnarkosninganna stendur yfir frá og með 17. apríl 2026.
Nánar um kosningu utan kjörfundar
Kjörskrá
Kjörskrá í Hafnarfirði vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí nk. liggur frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Hafnarfjarðar, þjónustuveri, Strandgötu 8-10, frá og með 25. apríl 2026. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands.
Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningunum. Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Hér ættu einnig að birtast upplýsingar um kjörstað og kjördeild. Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili þrem vikum fyrir kjördag. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.
Smelltu hér til að finna þína kjördeild
Meðfylgjandi framboðslistar sem verða í kjöri í Hafnarfirði
Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar hefur veitt viðtöku sex framboðum til sveitarstjórnarkosninga í Hafnarfirði. Framboðin hafa öll verið úrskurðuð gild. Þau eru: Framsókn, Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkur, Samfylkingin og Vinstrið.