Vetrarfrí í Hafnarfirði – febrúar 2026
Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fimmtudaginn 19. febrúar og föstudaginn 20. febrúar. Mánudaginn 23. febrúar er síðan sameiginlegur…
Þríþrautarsamband Íslands býður upp á skemmtilega þríþrautardaga í júní fyrir ungmenni á aldrinum 13 til 16 ára og 17 til 19 ára.
Markmiðið er að gefa ungmennum góða upplifun af þátttöku í þríþraut (sund, hjól og hlaup) með æfingum sem henta og eru óháð getu og fyrri reynslu. Áhersla á tengslamyndun er stór þáttur á þessum degi. Þjálfuninni er skipt niður í hópa í getustig í hverri grein fyrir sig.
Áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með á Instagram @triathloniceland, Facebook síðu Þríþrautarsambands Íslands og vefnum: www.triathlon.is