Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fimmtudaginn 23. febrúar og fimmtudaginn 24. febrúar. Af því tilefni býður Heilsubærinn Hafnarfjörður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í skemmtilegri dagskrá í vetrarfríinu og finna góðar hugmyndir að skemmtilegri og fjölbreyttri afþreyingu um allan Hafnarfjörð fyrir alla fjölskylduna á vef bæjarins. Meðal annars er frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar. 

Fimmtudagur 23. febrúar 

  • FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21 
  • Ratleikur fyrir börnin og áhugaverðar sýningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Opið kl. 11-15 
  • Skúlptúrsmiðja í Hafnarborg kl. 13-15. Unnið verður með gifs til þess að búa til skúlptúra í anda listakonunnar Sóleyjar Eiríksdóttur en um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum hennar í safninu. Sóley sjálf vann stærri skúlptúra sína með því að klæða burðargrind með steinsteypu en þar kemur gifsið inn að þessu sinni. Leiðbeinandi er Unnur Mjöll S. Leifsdóttir, myndlistarmaður og sérfræðingur á skrifstofu Hafnarborgar.
  • VR-spilun í Bókasafni Hafnarfjarðar kl. 15. 
  • Brettafélag Hafnarfjarðar er með opið hús frá 10:00-14:00, Flatahrauni 14.  Frítt inn og ókeypis að fá lánaðan búnað.  Opið fyrir alla ( hjólabretti, hlaupahjól og BMX).
  • Opnir tímar hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar. Dansfjör kl. 10, 11 og 12:15 og silki kl. 12:10, 13:15 og 14:15. Hámarksfjöldi í hvern tíma og skráning nauðsynleg. 

Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu. Á vef Hafnarfjarðarbæjar er hægt að nálgast fullt af hugmyndum af áhugaverðum stöðum að heimsækja, leik- og boltavellir eru víða og fjölmargar göngu- og hjólaleiðir liggja um Hafnarfjörð. 

Heilsubærinn Hafnarfjörður óskar íbúum og vinum Hafnarfjarðar gleðilegs vetrarfrís! 

Ábendingagátt