Skeið og skál | Fjölskyldustund á laugardegi
Í þessari smiðju hönnum við skeiðar og skálar í mismunandi stærðum og úr mismunandi efnum. Við veltum fyrir okkur nöfnum…
Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fimmtudaginn 19. febrúar og föstudaginn 20. febrúar. Mánudaginn 23. febrúar er síðan sameiginlegur skipulagsdagur leik- og grunnskóla. Af því tilefni býður Heilsubærinn Hafnarfjörður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í skemmtilegri dagskrá í vetrarfríinu og finna góðar hugmyndir að skemmtilegri og fjölbreyttri afþreyingu um allan Hafnarfjörð fyrir alla fjölskylduna.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu. Á vef Hafnarfjarðarbæjar er hægt að nálgast fullt af hugmyndum af áhugaverðum stöðum að heimsækja, leik- og boltavellir eru víða og fjölmargar göngu- og hjólaleiðir liggja um Hafnarfjörð.
Heilsubærinn Hafnarfjörður óskar íbúum og vinum Hafnarfjarðar gleðilegs vetrarfrís!