Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði
Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði Sumardeginum fyrsta 2026 verður fagnað með fjölbreyttum hátíðarhöldum um allan Hafnarfjörð! Opið er í sund í…
Víðvangshlaup Hafnarfjarðar fer fram í miðbæ Hafnarfjarðar á Sumardaginn fyrsta. Upphitun fyrir hlaupið hefst kl. 12 á Thorsplani. Hlaupið verður eftir Strandgötu og skipt í aldursflokka að lokinni upphitun.
Ekkert þátttökugjald er í hlaupið og skráning fer fram með því að mæta á staðinn. Sigurvegarar í flokkum fá bikara og allir keppendur verðlaunapeninga sem eru gefnir af Hafnarfjarðarbæ.
Frjálsíþróttadeild FH mun kynna frjálsar íþróttir á Thorsplani og verður meðal annars hægt að prófa langstökk og kúluvarp.
Keppt er í eftirtöldum flokkum:
Yngstu keppendurnir hlaupa fyrst og svo koll af kolli. Undanfari verður með yngstu keppendunum.
Frjálsíþróttadeild FH sér um framkvæmd hlaupsins fyrir Hafnarfjarðarbæ.
Kl. 12:00 Upphitun á Thorsplani
Kl. 12:30 Hlaup hefst frá Strandgötu
Kynning á frjálsum íþróttum á Thorpsplani
Kl. 13:15 Skrúðganga frá Thorsplani að Víðistaðatúni þar sem skátafélagið Hraunbúar sér um skátadagskrá í tilefni dagsins!