Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.

Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.

Laugardaginn 19. september verður það Dr. Erna Magnúsdóttir, dósent við læknadeild Háskóla Íslands, sem mun segja gestum frá rannsóknum og vísindastörfum sínum á sviði læknavísinda.

Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.

Vísindakakó er undir Vísindavöku hjá Rannís sem hlaut styrk, í gegnum Marie Sklodowska-Curie áætlunina sem er undir Horizon Europe – rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins, fyrir starfsveturinn 2026-2027 og 2027-2028.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!

Ábendingagátt