Vortónleikar Kammerkórs Hafnarfjarðar: Lögin hans Friðriks og fleira íslenskt

Kammerkór Hafnarfjarðar heldur vortónleika í Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 7. maí kl. 20:00. Efnisskráin er fjölbreytt samanstendur af perlum úr smiðju Friðriks Bjarnasonar, ýmsum eftirlætislögum íslenskum, bæði þjóðlögum og nýrri tónsmíðum. Landið okkar, Fjörðurinn fagri, náttúran og lífið eru meðal yrkisefna. Stjórnandi kórsins er Kári Þormar.

Miðaverð er 3000 kr. Eldri borgarar 2000 kr.

Viðburður Kammerkórsins á Facbook 

Ábendingagátt