Hafnarfjarðarbær fær Vonina frá Votlendissjóð

Fréttir

Á alþjóðlegum degi jarðar, föstudaginn 22 apríl, afhenti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, „Vonina“, þakklætis-viðurkenningu Votlendissjóðs fyrir árið 2021. Viðurkenningin var veitt í fyrsta sinn í fyrra en þá fór hún til lista- og vísindafólks sem lagt hefur sjóðnum lið. Í ár eru það eigendur fyrstu jarðanna sem sjóðurinn hefur lokið endurheimt við sem hljóta Vonina. 

Votlendissjóður afhendir Vonina á alþjóðlegum degi jarðar

Á alþjóðlegum degi jarðar, föstudaginn 22 apríl, afhenti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, „Vonina“, þakklætis-viðurkenningu Votlendissjóðs fyrir árið 2021. Viðurkenningin var veitt í fyrsta sinn í fyrra en þá fór hún til lista- og vísindafólks sem lagt hefur sjóðnum lið. Í ár eru það eigendur fyrstu jarðanna sem sjóðurinn hefur lokið endurheimt við sem hljóta Vonina. 

VotlendiApril2022

Endurheimt votlendis eitt helsta vopn mannsins í baráttunni við hlýnun jarðar  

Alþjóðlegur dagur jarðar var á föstudaginn og á það vel við að afhenda Vonina á þann dag enda er endurheimt votlendis eitt helsta vopn mannsins í baráttunni við hlýnun jarðar. Um leið er hún endurheimt vistkerfa og efling náttúrulegs fjölbreytileika. Samtals telja jarðirnar allar stöðvun upp á 5800 tonn – sem er það sama og losun 2900 fólksbíla. Það eru eigendur jarðanna Hofs, Bleiksmýri, Krísuvíkurmýri, Grafarkots, Gottorps, Kirkjubóls í Korpudal, Horns og Skóga innan af Dynjandi og Fífustaðadals við Arnarfjörð sem fá Vonina í ár. Samtals telja jarðirnar allar stöðvun upp á 5800 tonn – sem er það sama og losun 2900 fólksbíla.

Nánar um eigendur jarðanna

  • Hjónin Jófríður Gilsdóttir og Þorfinnur S. Hermannsson eru eigendur Hofs. Það var fyrsta jörðin sem Votlendissjóður endurheimti og vann Þorfinnur verkið sjálfur. Fyrir þeirra hönd tekur Guðmundur Freyr Kristjánsson við Voninni. Samtals er svæðið 16 hektarar og því stöðvun losunar upp á 320 tonn af koldíoxíð á ári.
  • Hafnarfjarðarbær er eigandi Bleiks- og Krísuvíkurmýri. Það voru jarðir 2 og 3 sem sjóðurinn endurheimti. Þar er um að ræða 29 hektara í Bleiksmýri og 24 hektara í Krísuvíkurmýri. Samtals því 54 hektarar og stöðvun losunar upp á 1060 tonn á ári – til samanburðar eru það 530 fólksbílar á ári. Það er Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri sem tekur á móti þakklætis viðurkenningunni.
  • Bræðurnir Kristmann Örn Magnússon og Leifur Ragnar Magnússon ásamt fjölskyldum þeirra eru eigendur Grafarkots. Jörðin var endurheimt í upphafi Covid ársins 2020 og lauk vinnunni í apríl það ár. Samtals eru þar um 30 hektarar í allt og 600 tonn af árlegri losun stöðvuð. Kristmann Örn tekur á móti Voninni fyrir hönd eigenda.
  • Fjölskylda Steinþórs Hjaltasonar eru eigendur Gottorps. Þau endurheimtu þessa fornfrægu jörð síðsumar ársins 2020. Steinþór er verktaki sjálfur í Kópavogi og vann þetta í samráði við ráðgjafa Landgræðslunnar. Samtals eru þetta 33 hektarar sem um ræðir sem eru 660 tonn af árlegri losun sem var stöðvuð.
  • Páll Á. R. Stefánsson og fjölskylda eru eigendur Kirkjubóls í Korpudal. Þar fór endurheimt fram haustið 2020. Það voru verktakar Þotunnar á Bolungavík sem unnu það verkefni en jörðin var framræst árið 1972. Þar voru það 24 hektarar sem voru endurheimtir og samtals var stöðvuð losun upp á 480 tonn.
  • Víðir Birgisson og fjölskylda eru eigendur jarðanna Horns og Skóga . Samtals um 26 hektarar og 1040 tonn. Því verki lauk á vetrarsólstöðum í desember 2020 og var það mikið ævintýri þar sem svæðið er utan sólu á þeim tíma.
  • Ragnheiður Guðmundsdóttir er eigandi Fífustaðadals við Arnarfjörð. Þar fór endurheimt fram haustið 2021. Það var sameiginlegt verkefni verktaka Þotunnar og Suðurverks auk starfsmanns Landgræðslunnar. Þetta er lang stærsta verkefni sjóðsins til þessa og telur nærri 60 hekturum þegar allt er talið og um 1200 tonna stöðvum.

Nánar um Votlendissjóð

Votlendissjóðurinn er sjálfseignarstofnun sem er rekin á framlögum frá samfélagslega ábyrgum fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Endurheimt votlendis stöðvar losun koltvísýringsígilda, eflir líffræðilega fjölbreytni, fuglalíf og bætir vatnsbúskap í veiðiám. 

Ábendingagátt