Sækja um hús í Jólaþorpinu
Jólaþorpið leitar að hárréttri samsetningu seljenda í þorpinu fyrir árið 2026.
Val á söluaðilum til þátttöku í Jólaþorpinu hagar verkefnisstjórn Jólaþorpsins vali á söluaðilum eftir þessum þáttum sem tilgreindir eru hér fyrir neðan:
- Vöruflokkum
- Aðgengi vöru á boðstólnum á sölusvæði
- Upplýsingum um starfsemi umsækjanda
- Ásamt sérstökum aðstæðum sem geta komið fram
Hvað sölumuni varðar þurfa söluaðilar að uppfylla lög og reglur sem um þá kunna að gilda. Sé vara eða vöruflokkur skilyrtur á einhvern hátt eða háður veitingu leyfa ber söluaðila að kynna sér það og afla viðkomandi leyfa. Á þetta við t.d. sölu matvæla, drykkja, áfengra drykkja og annarrar vöru sem er mögulega eftirlitsskyld. Söluaðilar eru hvattir til að kynna sér einnig hvort og hvaða tryggingar kunni að vera hentugar eigi það við.
Staðsetning jólahúsa fer reglulega í endurskoðun og staðsetning einstakra söluaðila eftir því hvað hentar helst í því skyni. Það er keppikefli verkefnisstjórnar að Jólaþorpinu vegni sem best og er það haft til grundvallar við alla framkvæmd þess og starfsemi.
Innifalið í leigufjárhæð er allur kostnaður við uppsetningu og rekstur hússins og þrif á svæðinu. Að auki mun Hafnarfjarðarbær sjá um að laða að gesti og kynna Jólaþorpið með ýmsum hætti.