Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk í sumarafleysingu – Svöluás

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 12.03.2026

Umsóknarfrestur til: 26.03.2026

Tengiliður: Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Svöluási í Áslandshverfi. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun- kvöld-, helgar og næturvaktir. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Sinna heimilisstörfum
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
  • Reynsla af sambærulegu starfi æskileg

 

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hreint sakavottorð er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir, forstöðukona í síma 565-0301, netfang: birgittar@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2026.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf