Starfsmaður óskast á heimili fyrir fatlað fólk – Svöluás
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 16.03.2026
Umsóknarfrestur til: 30.03.2026
Tengiliður: Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Svöluási í Áslandshverfi. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun- kvöld-, helgar og næturvaktir.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
- Sinna heimilisstörfum
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
- Reynsla af sambærulegu starfi æskileg
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir, forstöðukona í síma 565-0301 netfang: birgittar@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2026.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.