Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild – Hraunvallaskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 19.03.2026
Umsóknarfrestur til: 02.04.2026
Tengiliður: Lars Jóhann Imsland
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara í Fjölgreinadeild skólans fyrir skólaárið 2026-2027.
Í Fjölgreinadeild eru nemendur sem á grundvelli fjölþætts vanda geta ekki nýtt alfarið þau námstilboð sem bjóðast í þeirra heimaskóla. Starfsstöð umsjónarkennara er við Fléttuvelli á skólalóð Hraunvallskóla og er skipuð fjórum til fimm starfsmönnum.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins. Einnig þarf viðkomandi hafa góða leiðtogahæfileika, víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fjölbreytt nálgun í kennslu og umsjón með nemendum í samvinnu við kennara, stoðþjónustu og foreldra
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við skólaþjónustu
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Taka þátt í stefnumótunarvinnu
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2026
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá og kynningarbréf.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.