HEIMA tónlistarhátíð 2026
HEIMA-hátíðin snýr aftur á síðasta degi vetrar Það er orðin kær hefð í Hafnarfirði að kveðja veturinn með HEIMA-hátíðinni. Hlýlegri…
Það er orðin kær hefð í Hafnarfirði að kveðja veturinn með HEIMA-hátíðinni. Hlýlegri og einstakri tónlistarhátíð í hjarta bæjarins. Hátíðin fer fram 22. apríl og býður upp á einstaka nálægð milli tónlistarfólks og gesta í notalegu og persónulegu umhverfi, nefnilega heima í stofu hjá Hafnfirðingum.
Á HEIMA opna íbúar í miðbænum heimili sín fyrir gestum og bjóða tónlistina inn í stofurnar. Í hverju húsi koma fram tveir mismunandi listamenn eða hljómsveitir yfir kvöldið og skapast þannig sérstök stemning sem aðeins HEIMA getur boðið upp á. Auk heimilanna verða Fríkirkjan í Hafnarfirði og Bæjarbíó einnig meðal tónleikastaða.
Hátíðin hefst kl. 14 í Ægir Brugghús þar sem afhent verða armbönd og dagskrá. Þar verður einnig hægt að njóta góðrar stemningar og skála í sérbrugguðum HEIMA-bjór. Fyrstu tónleikarnir hefjast síðan kl. 20 að lokinni formlegri setningu í Fríkirkunni kl. 19:30 allt til kl. 23. Þá tekur Bæjarbíó við og svo eftirpartý í Ægi þar sem Andrea Jóns sér um dansstemninguna langt fram á nótt. HEIMA-hátíðin er sannkölluð veisla þar sem tónlist, heimilisleg hlýja og samvera mætast á einstakan hátt. Þetta er kvöld til að njóta, rölta á milli húsa og upplifa fjölbreytta tónlist í hjarta Hafnarfjarðar.
HEIMA-hátíðin snýr aftur á síðasta degi vetrar Það er orðin kær hefð í Hafnarfirði að kveðja veturinn með HEIMA-hátíðinni. Hlýlegri…
Á Alþjóðlega jazzdaginn, fimmtudaginn 30. apríl kl. 18, mun kvartett spænska saxófónleikarans Alberts Cirera koma fram á næstu Síðdegistónum í Hafnarborg. Albert Cirera hefur…
Þriðjudaginn 5. maí kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á síðustu hádegistónleika þessa vormisseris í Hafnarborg en þá verður söngkonan Elín Ósk…