19. ágúst kl. 20 – Núvitundarganga við Hvaleyrarvatn

Bryndís Jóna Jónsdóttir leiðir göngu í nágrenni Hvaleyrarvatns. Við ætlum að upplifa þessa náttúruperlu í gegnum skynfærin okkar. Við pælum saman í því hvað felst í núvitundarfærni, hvernig við getum verið betur til staðar í lífinu okkar, stuðlað að betra jafnvægi og æfum okkur úti í náttúrunni. Gengið verður frá vesturenda Hvaleyrarvatns.

Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.

Ábendingagátt