Vegaframkvæmdir – Fjarðarhraun
Vegna vegaframkvæmda verður Fjarðarhraun lokað á milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar til suðurs, frá 3.júní kl.19:00 til 4.júní kl.03:00. Hjáleið verður um Reykjavíkurveg og Fjarðargötu.
Nánar:
„Kvöldið 3.júní og aðfaranótt 4.júní er stefnt á að fræsa kafla ásamt hringtorgi í Fjarðarhrauni í Hafnarfirði.“
„Kaflinn er 540m langur. Fjarðarhrauni verður lokað á milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar í suðurátt á meðan framkvæmdum stendur (opið í norðurátt). Hjáleið verður um Reykjavíkurveg og Fjarðargötu.“
„Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdri merkingaráætlun. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 á miðvikudaginn 3.júní og fram til 03:00 á fimmtudagsmorgun.“
„Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.Vegfarendur eru því beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.“