Götulokanir vegna 17.júní hátíðarhalda og skrúðgöngu
Vegna skrúðgöngu og 17.júní hátíðarhalda verður ýmist tímabundið lokað fyrir umferð bifreiða og/eða umferð handstýrt í og við miðbæ Hafnarfjarðar. Í gildi frá kl.11:00 til kl.22:00, miðvikudaginn 17.júní.
Daglokun
Vegna 17.júní hátíðarhalda verður tímabundið lokað fyrir umferð bifreiða um eftirfarandi götur: Strandgötu (frá Lækjargötu að Bæjartorgi), Linnetsstíg (frá Fjarðargötu að Hverfisgötu), Mjósund/Austurgötu, Skólabraut og Tjarnarbraut/Arnarhraun, milli kl.11:00 og kl.17:30:
Vegna skrúðgöngu í tilefni af 17. júní verður umferð handstýrð frá Flensborg niður Hringbrautina að Lækjartorgi, Lækjargötu og þaðan að Strandgötu, milli kl.12:50 og kl.13:20:
Kvöldlokun
Strandgatan og Linnetsstígurinn verða áfram lokuð milli kl.17:30 og kl.22:00:


