17. júní í Hafnarfirði – Heildardagskrá! 🎉
Hjarta Hafnarfjarðar tekur kipp á þjóðhátíðardaginn. Af hverju? Jú, þetta er dagurinn okkar allra. Vertu með Íþróttaálfinum og Sollu, Kristmundi Axel, Elínu Hall, Jóni Jónssyni og öllum Hafnfirðingum þar sem hjartað slær – í miðbæ Hafnarfjarðar. Fjölskyldan skemmtir sér saman í Hafnarfirði. Líf, fjör, list, tónlist og alls kyns uppákomur frá morgni til kvölds á þessum hátíðisdegi.
🎈 Byrjaðu daginn í sjósundi og gufu, kíktu svo á víkingana á Víkingahátíðinni, prófaðu hjólabretti eða jafnvel badminton. Gakktu síðan í skrúðgöngu að Thorsplani og Ráðhústorgi þar sem hátíðin nær hámarki. Þar bíða skemmtiatriði, tónleikar, dans, diskó og dýrindis veitingar af ýmsum gerðum.
- Börnin geta notið sín í leiksmiðju á vegum Plánetu, fengið andlitsmálun á Hörðuvöllum eða á Thorsplani og svo verða hoppukastalar víða um bæinn. Listunnendur geta skoðað nýjar sýningar bæði í Hafnarborg og á Byggðasafninu.
Dagskrá frá morgni til kvölds
- Kl. 8:00 – Fánar dregnir að húni og fánahylling á Hamrinum
- Kl. 10:00 – 13:00 – Sjósund og sauna við Langeyrarmalir
- Kl. 10:00 – 14:00 – Brettafélag Hafnarfjarðar – opið hús
- Kl. 11:00 – Þjóðbúningasamkoma í Flensborg
- Kl. 11:00 – 18:00 – Víkingahátíð á Víðistaðatúni
- Kl. 12:00 – 16:00 – Siglingaklúbbuirnn Þytur – opið hús
- Kl. 12:00-14:00 – Fjöltyngd fánasmiðja í Hafnarborg
- Kl. 12:30 – Fjallkonan 2026 skautuð í Hafnarborg
- Kl. 13:00 – Skrúðganga frá Flensborgarskóla
- kl. 13:00-15:00 – Fjölmenningarleg matarhátíð GETU samtaka
- Kl. 13:00-17:00 – Tennisfélag Hafnarfjarðar á Víðistaðatúni
- Kl. 13:30 – Þjóðhátíðarsviðið við Ráðhústorg
- Karlakórinn Þrestir
- Ávarp fjallkonu
- Setning hátíðarhalda
- Prinsessurnar þrjár
- Listdansskóli Hafnarfjarðar
- Ingó Töframaður
- Ormstunga – Króli og Jakob
- Latibær
- Skoppa og Skrítla
- DJ BFK
- Kl. 13:30-17:00
- Kl. 14:00 – Tónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar við Byggðasafnið
- Kl. 15:00 – Þjóðbúningasýning Annríkis og myndataka við Hafnarborg
- KL. 17:00 – Brekkusöngur barnanna í Hellisgerði
🎶 Dagskráin heldur áfram, en frá kl.19 verður tónlistarveisla við Ráðhústorg þar sem landsþekkt tónlistarfólk stígur á svið!
- Lúðrasveit verkalýðsins
- Elín Hall
- Elvar
- gugusar
- Kristmundur Axel
- Jón Jónsson
✨ Við hvetjum bæjarbúa og gesti til að leggja bílum nálægt miðbænum og ganga inn á svæðið, njóta dagsins saman – og skilja hundana eftir heima 🐾.
Verið öll hjartanlega velkomin – við sjáumst í Hafnarfirði 17. júní!
👉 Sjá nánar um alla viðburði dagsins
🚧🚗❌ Samgöngur og umferðalokanir
Miðbærinn verður lokaður fyrir bílaumferð á meðan á hátíðarhöldum stendur. Sjá nánar HÉR.
- Strandgata við Lækjargötu
- Linnetsstígur við Fjarðargötu og Hverfisgötu 23
- Austurgata frá Linnetsstíg
- Mjósund við Austurgötu
- Tjarnabraut frá Arnarhrauni að Lækjarskóla
- Bílastæði fatlaðra við Linnetsstíg 1
Dagskrá getur breyst án fyrirvara og viðburðir bæst við eða frestast.