🎉 Öll hús Byggðasafnsins opin á þjóðhátíðardaginn – 17. júní!
🕚 Opið kl. 11:00–17:00
🎺 Lúðrasveit Hafnarfjarðar spilar fyrir utan Pakkhúsið kl. 14:00 – gleði og góð stemning! 🎶
🏠 Pakkhúsið – Vesturgata 6
🕚 Opið 11:00–17:00
🎈 Þar má finna þrjár fjölbreyttar sýningar:
-
Handboltabærinn Hafnarfjörður
Saga handknattleiksins í Hafnarfirði rakinn allt frá því að fyrsti leikurinn fór fram árið 1925 og fram til dagsins í dag! -
Sagan frá landnámi til dagsins í dag 📖🏞
-
Leikfangasýning fyrir börn á efstu hæð 🧸🚂🎠
🏚️ Siggubær – Kirkjuvegur 10
🕚 Opið 11:00–17:00
Ný sýning í Siggubæ en þar er sýnt hvernig alþýðufjölskyldan í Hafnarfirði bjó í byrjun 20. aldar og hvernig hinir dæmigerðu bárujárnsklæddu timburbæir litu út.⚓️🪝🍲
🏡 Bookless Bungalow – Vesturgata 32
🕚 Opið 11:00–17:00
Notalegur bær með sögu og sál 💚
📸 Ljósmyndasýning á Strandstígnum:
Ljósmyndasýningar sem varpa ljósi á dagleg störf og sögu fólksins sem bæinn byggði
Köldu ljósin – Sýning í undirgöngunum undir Lækjargötu, við Hamarskotslæk: Sýningin Köldu ljósin var sett upp í tilefni 120 ára afmælis fyrstu almenningsrafveitunnar á Íslandi 🌟