Götulokanir vegna 17. júní hátíðarhalda og skrúðgöngu

Tilkynningar

Vegna skrúðgöngu og 17. júní hátíðarhalda verður ýmist tímabundið lokað fyrir umferð bifreiða og/eða umferð handstýrt í og við miðbæ Hafnarfjarðar. Í gildi frá kl. 11:00 til kl. 22:00, miðvikudaginn 17. júní.

Daglokun

Vegna 17. júní hátíðarhalda verður tímabundið lokað fyrir umferð bifreiða um eftirfarandi götur: Strandgötu (frá Lækjargötu að Bæjartorgi), Linnetsstíg (frá Fjarðargötu að Hverfisgötu),  Mjósund/Austurgötu, Skólabraut og Tjarnarbraut/Arnarhraun, milli kl. 11:00 og kl. 17:30:

Vegna skrúðgöngu í tilefni af 17. júní verður umferð handstýrð frá Flensborg niður Hringbrautina að Lækjartorgi, Lækjargötu og þaðan að Strandgötu, milli kl. 12:50 og kl. 13:20:

Kvöldlokun

Strandgatan og Linnetsstígurinn verða áfram lokuð milli kl. 17:30 og kl. 22:00:

Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!

Ábendingagátt