Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut
Vegna vegaframkvæmda (fræsing og malbikun) verður Reykjanesbraut lokuð að hluta, við Marel og Kaplakrika, frá 14.júní kl.19:00 til 15.júní kl.07:00.
Nánar:
„Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir sunnudagskvöldið 14.júní og aðfaranótt 15.júní.“
„Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut í vesturátt framhjá Marel. Framkvæmdir munu standa frá kl.19:00 til kl.04:00 aðfaranótt 15. júní. Kaflinn er 730m langur. Þrengt verður í eina akrein á meðan framkvæmdum stendur.“
„Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut, beygjuvasa framhjá Kaplakrika. Framkvæmdirnar munu standa frá kl.21:00 til kl.07:00 aðfaranótt 15. júní. Beygjuvasinn verður lokaður og þrengt verður í eina akrein á akreinum meðfram vinnusvæðinu“.
„Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.“