Elín Fanney Ólafsdóttir er myndlistarmaður sem býr og starfar í Hafnarfirði. Hún hefur unnið að myndlist síðan 2017 og hefur á þeim tíma þróað persónulegan myndheim þar sem abstrakt form, línur og litir gegna lykilhlutverki.

Í verkum sínum vinnur Elín gjarnan með abstrakt myndmál, þar sem hún leikur sér með línur, form og texta á myndfletinum. Hún notar oft bjarta og kraftmikla liti sem mynda samtal sín á milli og skapa spennu, hreyfingu og tilfinningalegt rými innan verksins. Verk hennar byggja bæði á innsæi og tilraunum, þar sem hún kannar hvernig einföld form og litir geta miðlað stemningu, orku og persónulegri upplifun.

Elín lauk eins árs námi í myndlist við Myndlistaskólann í Reykjavík. Elín vinnur að verkum sínum í stúdíó í Hafnarfirði og í Listvinnzlunni í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og heldur áfram að þróa listsköpun sína með virkum hætti. Framundan er þátttaka hennar í sýningu Listvinnzlunar í Listasafni Samúels Jónssonar í Selárdal , sem er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2026.

Samhliða myndlistinni er Elín virk í íþróttum og æfir golf með Golfsambandi fatlaðra á Íslandi auk þess að vera félagi í Golfklúbbnum Keili. Hún hefur fjórum sinnum tekið þátt í Special Olympics World Games í golfi. Hún var lengi i sundi og er margfaldur bikarmeistari og stundar nú kraftlyftingar og kúluvarp af kappi með Fjörður – íþróttafélag fatlaðra í Hafnarfirði.

Innblástur sækir Elín bæði í listina sjálfa og í samfélagið í kringum sig. Í verkum hennar má finna áherslu á tilfinningar, samveru og kraft mannlegrar reynslu, þar sem hún leitast við að skapa verk sem tala til áhorfenda og opna fyrir mismunandi túlkanir.

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 23. júlí frá 18:00-21:00 og þú ert velkomin !

Sýningarstjórn: Elvar Gunnarsson

Aðrir opnunartímar:

Fös. 24. júlí 13:00 – 18:00
Lau. 25. júlí 13:00 -17:00
Sun. 26. júlí 14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý er styrkt af Menningar og ferðamálanefnd
Hafnarfjarðarbæjar vegna viðburðarins

—————————–

Elín Fanney Ólafsdóttir is a visual artist who lives and works in Hafnarfjörður, Iceland. She has been working in visual art since 2017 and has developed a personal visual language in which abstract forms, lines, and colors play a central role.

In her work, Elín often explores abstract expression, experimenting with lines, shapes, and text across the surface of the canvas. She frequently uses bright and vibrant colors that interact with one another, creating tension, movement, and an emotional space within the work. Her artistic process is guided by both intuition and experimentation, exploring how simple forms and colors can convey mood, energy, and personal experience.

Elín completed a one-year program in visual art at the Reykjavík School of Visual Arts. She works on her art both in her studio in Hafnarfjörður and at Listvinnslan in Reykjavík. She has participated in several group exhibitions and continues to actively develop her artistic practice. She will take part in an upcoming exhibition at Samúel Jónsson Art Museum in Selárdalur, which is part of the program of the Reykjavík Arts Festival 2026.

Alongside her artistic practice, Elín is active in sports. She plays golf with the Icelandic Disabled Golf Association and practices powerlifting with Fjörður – Sports Club for People with Disabilities in Hafnarfjörður (which provided the subject for a recent documentary that she directed). She also trains and plays golf at Keilir Golf Club and has participated four times in the Special Olympics World Games in golf.

Elín draws inspiration both from art itself and from the community around her. Her work often reflects themes of emotion, togetherness, and the strength of human experience. Through her art, she seeks to create works that resonate with viewers and open space for multiple interpretations.

There will be a special exhibition opening on Thursday, July 23th from 18:00-21:00 and you are welcome!

Curator: Elvar Gunnarsson

Other opening hours

Fri 24th July 13:00 – 18:00
Sat 25th July 12:00 – 17:00
Sun 26th July 14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður for this event.

Ábendingagátt