Útileguvagnar og bílar verða nú að víkja af skólalóðum
Skólastarfið er að hefjast á ný. Öll útilegutækin, vagnar og bílar, þurfa því að víkja af bílastæðum grunnskólanna. Já, munum. Það átti að gerast fyrir 10. ágúst. Það er því ekki annað að gera en að vinda sér í verkið.
Skólalóðirnar aftur í rétta notkun
Skólastarfið er að hefjast á ný og nú þurfa útilegutækin að víkja af bílastæðum grunnskólanna.
Hafnarfjarðarbær bauð eigendum útilegutækja að nýta bílastæði við grunnskóla bæjarins meðan skólarnir voru lokaðir. Boðið gilti til 10. ágúst. Sá tími nú liðinn. Eigendur tjaldvagna, fellihýsa, hjólhýsa, húsbíla og annarra tækja sem enn eru á skólalóðum eru því vinsamlega beðnir um að fjarlægja þau sem allra fyrst.
Skólastarfið að komast á skrið
Skólastarf er að hefjast á ný og mikilvægt er að lóðir og bílastæði skólanna séu aðgengileg fyrir starfsfólk, nemendur og foreldra þegar skólarnir vakna aftur til lífsins eftir sumarfrí. Starfsfólkið er þegar mætt.
Við þökkum eigendum fyrir að bregðast vel við og óskum skólafólki góðrar byrjunar á nýju skólaári.