Hringr // Þorbjörg Signý Ágústsson
Hringr er málverkasería eftir listakonuna Þorbjörgu Signýju Ágústsson (f. 1998) sem leitast við að túlka líf og dauða í gegnum…
Fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20 bjóðum við ykkur velkomin á opnun tveggja nýrra sýninga í Hafnarborg en að þessu sinni kynnum við haustsýningu safnsins árið 2026, spássíuna, í sýningarstjórn Katrínar Bjargar Gunnarsdóttur og Úlfs Braga Einarssonar, og Bjarmaband, þar sem sýnd eru verk eftir Frosta Fjalar.
Beint er sjónum að sýningarrýminu sjálfu og hlutverki þess í sýningargerð – að þeim möguleikum sem búa í hinu óséða eða gleymda, í tóminu sem er í raun aldrei tómt. Arkitektúrinn myndar þannig ekki aðeins umgjörð verkanna heldur verður virkur þáttur í mótun sýningarinnar. Hefðbundin sýningargerð beinist gjarnan að miðlægum punktum og augnhæð áhorfenda en hér er dvalið sérstaklega við jaðarinn, þar sem krókar, kimar og aðrir minna áberandi fletir safnrýmisins eru dregnir fram og fá aukið vægi í heildarupplifun sýningarinnar.
Á sýningunni eiga sex listamenn í beinu samtali við sýningarrýmið. Þau vinna með ólíka miðla en eiga það öll sameiginlegt að takast á við rýmið, hvort sem er í gegnum efni, hugmynd eða uppsetningu. Þannig verður spássían sjálf að viðfangsefni sýningarinnar, bæði sem raunverulegt rými og hugmynd.
Listamennirnir eru Daníel Ágúst Ágústsson, Gabi Schillig, Hildur Elísa Jónsdóttir, Iyo Hasegawa, Joe Keys og Shiori Ono. Sýningarstjórar eru Katrín Björg Gunnarsdóttir og Úlfur Bragi Einarsson.

Á sýningunni getur að líta úrval verka eftir Frosta Fjalar, listamann sem um áratugaskeið vann að list sinni í einrúmi. Frosti, sem áður hét Jakob Jónsson, átti að baki langan og sérstakan feril sem spannaði meira en hálfa öld. Eftir virkt sýningartímabil á áttunda og níunda áratug síðustu aldar dró hann sig í hlé og tók hvorki þátt í sýningum né var virkur á opinberum vettvangi eða innan myndlistarsamfélagsins. Þrátt fyrir það hélt hann áfram að vinna af mikilli festu og byggði upp umfangsmikið safn verka. Á löngum ferli mótaðist myndmál hans af næmu formskyni, agaðri myndbyggingu og sterkri tilfinningu fyrir litum.
Sýningarstjóri er Ásdís Spanó.
Frosti Fjalar (1936-2026) nam myndlist í Kaupmannahöfn, fyrst við Ny Carlsberg Glyptotek og síðar við Det Kongelige Danske Kunstakademi, auk þess sem hann lauk prófi í byggingarverkfræði frá KTH í Stokkhólmi. Eftir síðustu sýningu sína árið 1991 hvarf hann af sjónarsviðinu en hélt áfram að skapa af einstakri einurð. Eftir hann liggja hátt í sex þúsund vatnslitaverk og um átta hundruð málverk. Frosti Fjalar féll frá á meðan unnið var að sýningunni og setur fráfall hans verkefnið í nýtt og dýpra samhengi. Bjarmaband dregur þetta merka ævistarf fram í dagsljósið á ný og býður áhorfendum inn í agaðan, litsterkan og heillandi taktheim listamannsins.
Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.