Miðvikudaginn 9. september kl. 17:00 – lautin við Skúlaskeið 

Gefðu þér stund til að staldra við og næra líkama og huga í fallegu umhverfi Hellisgerðis þegar Kristjana Jökumsen hjá Hugur í hjarta leiðir þátttakendur í róandi HamingjuJógaNidra á Hamingjudögum í Hafnarfirði. 

Jóga Nidra er djúpslökunaraðferð sem hjálpar líkama og huga að losa um spennu, draga úr streitu og endurnýja orkuna. Með mildri leiðsögn gefst þátttakendum tækifæri til að slaka á, kyrrast og tengjast betur sjálfum sér í notalegu og afslappandi umhverfi. 

Engin reynsla er nauðsynleg og allir eru velkomnir að taka þátt, hvort sem þeir stunda jóga reglulega eða eru að prófa í fyrsta sinn. Gott er að mæta í þægilegum fatnaði og taka með sér dýnu, kodda og teppi til að gera upplifunina sem notalegasta. 

Komdu og njóttu rólegrar og nærandi stundar fyrir líkama og sál! 

Ábendingagátt