Skapandi sumarstörf

Verkefnið Skapandi Sumarstörf fór fyrst af stað í Hafnarfirði árið 2017 og bauð þá einstaklingum og hópum á aldrinum 18-20 ára, með lögheimili í Hafnarfirði, að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem lífguðu upp á mannlífið í bænum, gladdi ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti.

Árið 2021 voru gerðar breytingar á inntökuskilyrðum: aldursviðmið var hækkað í 18–25 ár og við mat umsókna var tekið tillit til þess að meirihluti hópsins væri með lögheimili í Hafnarfirði eða að verkefnið væri staðsett og starfrækt þar. Einnig var horft til kynjahlutfalls við val á hópum.

Síðan 2021 hafa íbúar Hafnarfjarðabæjar notið góðs af verkefninu hvert sumar. Eftirsóknin er töluverð þar sem hópar af ungmennum sækja um starfið og leggja allt í sölurnar í von um að vera valin sem eitt af þátttakendum sumarsins.

Sumarið 2025 var Skapandi sumarstarf rekið sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar í samstarfi við Nýsköpunarsetrið við Lækinn. Markmið þess er að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Sem og að vera stökkpallur fyrir ungt listafólk til að þróa sig áfram í sinni list, þjálfa sig í að vinna sjálfstætt og koma listsköpun sinni á framfæri.

Ábendingagátt