Gafló leiklistarskóli

Leiklistarskóli Gaflaraleikhússins snýr aftur!

Það er virkilega gaman að segja frá því að við í Gaflaraleihúsinu höfum fengið afnot af þriðju hæðinni Nýsköpunarsetrinu við lækinn (Gamla lækjarskóla). Þar munum við bjóða upp á kennslu í leik og sviðslistum.

Gaflaraleikhúsið hefur verið þekkt í gegnum tíðina fyrir að bjóða upp á vandað uppeldi á ungu og efnilegu sviðslistafólki og hefur í mörg ár verið með nám til að kenna leiklist, handritaskrif og leikritasköpun.

Upp úr þessu námi hafa sprottið vandaðar sýningar sem hafa heillað unga áhorfendur og þroskað sjálfstæði ungra listamanna sem hafa svo margir skipað sér í fremstu röð sem atvinnufólk í sviðslistum.

Gafló skólinn býður upp á leiklistarval fyrir nemendur á unglingastigi í Hafnafirði. Þeir sem hafa áhuga geta fengið nánari upplýsingar hjá námsráðgjafa í sínum skóla. Námskeiðið er frítt fyrir unglinga í hafnfirskum skólum. Gafló býður einnig upp á leiklistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára.
Fleiri spennandi námskeið, leikrit og viðburðir eru í boði hjá Gafló- skólanum og Gaflaraleikhúsinu og allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu okkar gaflaraleikhusid.is

Ábendingagátt