Brúarsmiðir bjóða foreldrum og öðrum áhugasömum í opið hús á Bókasafni Hafnarfjarðar alla miðvikudaga. Þar gefst tækifæri til að spyrja spurninga, fá ráðgjöf og stuðning varðandi skólagöngu barna, frístunda- og íþróttastarf, samskipti við skóla og notkun kerfa á borð við Völu, Mentor og Abler.

Brúarsmiðir eru menningarmiðlarar sem starfa á vegum Mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar.

Þjónustan er ókeypis og ekki þarf að skrá sig fyrir fram.

Hægt er að fá stuðning á íslensku, ensku, pólsku, arabísku og spænsku.

Nánari upplýsingar: bru@hafnarfjordur.is

Velkomin í opið hús hjá Brúarsmiðum!

Ábendingagátt