Ég hef verið með annan fótinn úti í Póllandi síðastliðin sex ár og hef þar kynnst ekki einungis þjóð sem reis úr ösku styrjaldar, heldur einnig dýri sem, í samleið með þeirri þjóð, sigraði dauðann og var bjargað frá útrýmingu. Í þúsundir ára fékk evrópski vísundurinn að búa samhliða mannfólkinu, þó ekki átakalaust.

Veiddur og hrakinn á brott sá hann Rómaveldi hinu forna, yfirráð Genghis Khan, konungsveldi rísa og falla, byltingu eftir byltingu, stríð eftir stríð. Þar til árið 1921, þegar síðasta villta dýrið varð veiðimönnum að bráð og tegundin var því útrýmt í náttúrunni. Einungis tólf dýr voru á lífi í dýragörðum vítt og dreift um Evrópu.

Pólverjar tóku sig til og söfnuðu þessum dýrum saman og settu þau á verndarsvæði í Póllandi. Þar var stofninn ræktaður undir mikilli aðhlynningu og, þrátt fyrir heimsstyrjöld og áratugi undir hæl Sovétríkjanna, tókst þeim hægt og rólega að sleppa þeim út í náttúruna, aftur til síns heima. Og nú hafa þessir síðustu risar, tæplega öld síðar, dreift sér víða og finnast nú á bilinu 11–12 þúsund dýr í heiminum. Um 8.800 þeirra búa villt, eins og forfeður þeirra gerðu í aldaraðir.

Sögur eins og þessi heilla mig, sögur af þrautseigju, af sigri gegn mótlæti, hið ómögulega gert mögulegt í krafti viljans. Þetta tengi ég við svo margt, ekki bara í mínu eigin lífi, heldur við allt sem ég sé í heiminum. Það finnast sögur alls staðar sem við lítum, þær tala misjafnt til okkar. En stundum getum við lært svo mikið bara á því að horfast í augu við eitt dýr. Því saga þess, barátta og þrautseigja, verður stærra en dýrið sjálft, því þessi saga býr í okkur öllum.

———

Júlíus Hafsteinn (1994) er íslenskur listmálari sem starfar bæði á Íslandi og í Póllandi. Hann vinnur í raunsæjum stíl sem blandar saman nákvæmni og djarfri pensilskrift.Myndefni hans sækir innblástur í mannkynssöguna, náttúruna, trú og hefðir, með áherslu á hetjuskap, seiglu og þann kraft sem felst í að standast mótlæti. Hann hefur meðal annars unnið röð málverka af evrópska vísundinum, auk mynda af stríðsmönnum, ólíkum menningarheimum og landslagi, þar sem fegurð og styrkur
náttúrunnar fá að njóta sín. Hann málar aðallega með olíulitum á striga og viðarplötur og aðlagar vinnubrögð sín að hverju viðfangsefni, hvort sem um er að ræða söguleg verk sem krefjast rannsókna eða frjálsari og innsæisríkari dýra- og landslagsmyndir.

Í verkum hans er lögð áhersla á upphafningu lífsins, tengingu við anda fortíðarinnar og að skapa myndir sem eru bæði fallegar og innihaldsríkar. Júlíus er með bakgrunn í kvikmyndanámi sem hefur mótað sjónræna hugsun hans, frásagnargetu og faglega nálgun. Hann hefur selt fjölda verka, rekur eigin vinnustofu í Hafnarfirði og hefur byggt upp reglubundna starfsemi sem listmálari. Hann kenndi landslagsmálun á Akureyri um árabil og hefur unnið að myndlistarviðburðum í Reykjavík og Hafnarfirði, auk þess að þróa eigin verkefni og seríur.

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 17. september frá 18:00-21:00 og þú ert velkomin !

Sýningarstjórn: Elvar Gunnarsson

Aðrir opnunartímar:

Fös.                      18. sep            13:00 – 18:00
Lau.                      19. sep            13:00 -17:00
Sun.                      20. sep            14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý er styrkt af Menningar og ferðamálanefnd
Hafnarfjarðarbæjar vegna viðburðarins

————————

For the past six years, I have had one foot in Poland. During that time, I have come to know not only a nation that rose from the ashes of war, but also an animal that, alongside that nation, survived against the odds and was brought back from the brink of extinction. For thousands of years, the European bison lived alongside humankind, though not without conflict. Hunted and driven from its territories, it witnessed the rise and fall of the Roman Empire, the conquests of Genghis Khan, kingdoms and monarchies rising and falling, revolution after revolution, war after war. Then, in 1921, the last wild European bison was killed by hunters, and the species became extinct in the wild.

Only twelve animals remained, scattered among zoos across Europe. The Polish people refused to let the story end there. These remaining animals were gathered together and placed under protection in Poland. Through careful breeding and dedicated conservation efforts, the population slowly began to recover. Despite the devastation of another world war and decades under Soviet rule, the bison were gradually reintroduced into the wild, returning them to the lands of their ancestors. Today, barely a century later, these last giants have spread across vast territories once again. Their numbers have grown to somewhere between 11,000 and 12,000 worldwide, with approximately 8,800 living in the wild, as their ancestors did for countless generations.

Stories like this have always fascinated me—stories of perseverance, of triumph over adversity, of the seemingly impossible being made possible through determination and will. I see connections to this everywhere, not only in my own life, but in the world around me. Stories exist everywhere we look, and each of us hears something different in them. Sometimes we can learn an extraordinary amount simply by looking into the eyes of an animal. Its history, its struggle, and its survival become something larger than itself, because in some way, that story lives within us all.

———

Julius Hafsteinn (1994) is an Icelandic painter working between Iceland and Poland. His practice is rooted in realism, combining meticulous observation with bold and expressive brushwork. His subjects draw from human history, nature, faith, and tradition, with a recurring interest in heroism, resilience, and the strength required to endure adversity. His work includes a series devoted to the European bison, alongside paintings of warriors, cultures, and landscapes in which the beauty and power of the natural world take centre stage. He primarily works in oil on canvas and wooden panels, adapting his approach to each subject—whether historical works that demand extensive research or more intuitive and spontaneous depictions of animals and landscapes.

Across his work runs an emphasis on the celebration of life, a connection to the spirit of the past, and a desire to create images that are not only visually compelling, but carry a deeper sense of meaning. Júlíus has a background in film studies, which has profoundly shaped his visual thinking, sense of narrative, and professional approach to image-making. He has sold numerous works, maintains his own studio in Hafnarfjörður, and works professionally as a painter. He taught landscape painting in Akureyri for several years and has participated in and developed art events in Reykjavík and Hafnarfjörður, alongside pursuing his own independent projects and series.

There will be a special exhibition opening on Thursday, September 17th  from 18:00-21:00 and you are welcome!

Curator: Elvar Gunnarsson

Other opening hours

Fri                             18th   Sep            13:00 – 18:00
Sat                           19th   Sep            12:00 –  17:00
Sun                          20th   Sep            14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður for this event.

 

Ábendingagátt