Fjölskyldujólatónleikar Gunna og Felix
Gaflaraleikhúsið kynnir: Fjölskyldu jólatónleikar Gunna og Felix 2026 – MIÐASALA Gunnar Helgason og Felix Bergsson eða Gunni og Felix eru…
Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað með hátíðlegri dagskrá á Thorsplani föstudaginn 13. nóvember þegar ljósin verða tendruð á Cuxhaven-jólatrénu. Sendiherra Þýskalands, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og formaður vinabæjarfélagsins Hafnarfjörður-Cuxhaven sjá um að tendra ljósin á trénu. Jólatréð er gjöf frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi til 38 ára. Það lýsir upp Jólaþorpið á nýjum stað í desember
Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 13. nóvember.
Helliskaffi í Hellisgerði er opið og sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið við Ráðhústorg og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum á opnunartíma Jólaþorpsins.
————————————————————–
Kl. 17:00 Jólaþorpið opnar
Kl. 18:00 Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Kl. 18:15 Karlakórinn Þrestir
Kl. 18:30 Tendrað á ljósunum á Cuxhaven jólatrénu
Kl. 18:40 Bókaálfarnir Una og Snotra
Kl. 16 Söngvasyrpa með Leikhópnum Lottu
Kl. 12 – 16 Pólski dagurinn á Bókasafni Hafnarfjarðar!
————————————————————–
Jólabærinn og Jólaþorpið iða allt af lífi og fjöri fyrir jólin. Fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin á Thorsplani eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun.
Tilvalið er að leita að hinni fullkomnu jólagjöf í Jólaþorpinu á meðan notið er gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn allar helgar og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum.
Strandgata frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Það er gert til að dreifa umferð gangandi vegfaranda um miðbæinn og tryggja öryggi allra okkar góðu gesta.
Við erum jólabærinn Hafnarfjörður
Allt um jólabæinn Hafnarfjörð 👉 hfj.is/jol
Fylgdu okkur á Facebook og instagram !