Betri afkoma og aðhald í fjárhagsáætluninni fyrir árið 2027
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2027, sem lögð hefur verið fram í fyrri umræðu. Áhersla er lögð á að styrkja reksturinn, takmarka ráðningar og forgangsraða fjárfestingum.
Unnið að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2027, sem lögð hefur verið fram í fyrri umræðu, gerir ráð fyrir um eins milljarðs króna afgangi af rekstri bæjarins og fyrirtækja hans. Afgangur A-hluta, sem nær yfir meginstarfsemi sveitarfélagsins, er áætlaður um 313 milljónir króna.
- Áhersla er lögð á að styrkja reksturinn, takmarka ráðningar og forgangsraða fjárfestingum.
Fyrri umræða um áætlunina fór fram á bæjarstjórnarfundinum á miðvikudag. Þar var langtímaáætlun fyrir árin 2028–2030 einnig rædd. Áætluninni var vísað einróma til frekari umfjöllunar í bæjarráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.
Vinna af festu í stöðunni
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri sagði á fundinum hálfs árs uppgjör sýna að fjárhagsstaða bæjarins væri talsvert verri en gert hafi verið ráð fyrir. Frávikið frá því sem reiknað hafi verið með hefði verið 2,8 milljarðar króna.
„Þessar tölur þarf að taka alvarlega. Þær kalla á skýr viðbrögð. Aukið aðhald og erfiðar ákvarðanir í tengslum við fjárhagsáætlanir næsta árs,“ sagði hann og fékk stuðning við þær áætlanir sem hann lagði fram.
Orri Björnsson, formaður bæjarráðs, sagði á bæjarstjórnarfundinum mikilvægt að Hafnarfjarðarbær væri vel rekið sveitarfélag. Mikilvægt væri að hugsa til framtíðar.
„Ég er ánægður með hvað starfsmönnum Hafnarfjarðar hefur tekist að leggja fram góða áætlun, sem auðvitað mun taka einhverjum breytingum þangað til hún verður afgreidd í desember. En þessi áætlun, eins og hún lítur út núna, sýnir okkur að það er mögulegt að ná kröftugum bata í rekstri bæjarins,“ sagði Orri.
Stefnt að viðsnúningi í rekstri
Útkomuspá fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir um 2,38 milljarða króna halla á A-hluta og um 1,37 milljarða króna halla á samstæðu bæjarins. Áætlun næsta árs felur því í sér um 2,69 milljarða króna bata á afkomu A-hluta.
Rekstrartekjur A-hluta eru áætlaðar 51,87 milljarðar króna árið 2027 og tekjur samstæðunnar 55,76 milljarðar. Laun og launatengd gjöld A-hluta eru áætluð 25,90 milljarðar króna og annar rekstrarkostnaður 19,11 milljarðar.
Gert er ráð fyrir um 989 milljóna króna söluhagnaði eigna á árinu 2027 sem hefur áhrif til hækkunar á rekstrarniðurstöðu. Áætlaður afgangur byggir því að hluta á eignasölu.
Ráðningar takmarkaðar og laun stjórnenda fryst
Fram kom á fundinum að hagræðingaraðgerðir innan stjórnsýslu bæjarins hafa verið samþykktar. Markmiðið er að stuðla að hagkvæmari og skilvirkari rekstri og bæta nýtingu fjármuna og mannafla.
Útfæra á ráðningarnefnd sem þarf að samþykkja ráðningar í störf utan grunnþjónustu. Störf sem losna verða ekki sjálfkrafa endurmönnuð.
- Áfram verður heimilt að ráða vegna eðlilegrar starfsmannaveltu í leikskólum, grunnskólum og á heimilum fyrir fatlað fólk, að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Þegar hefur verið samþykkt að laun bæjarstjóra og sviðsstjóra verði fryst í tvö ár. Einnig að útfærðar verði reglur sem takmarka og skilyrða nýjar fjárfestingar á sama tímabili.
Styrkja þarf grunnreksturinn
Samantekt KPMG, sem fylgir áætluninni, bendir á að fjárhagsstaða bæjarins hafi þyngst, einkum í A-hluta. Myndun fjármuna í rekstri hafi verið of lítil til að standa undir afborgunum skulda og skuldbindinga.
Áhersla er lögð á að bæta grunnreksturinn, forgangsraða fjárfestingum, bæta nýtingu eigna og selja eignir sem ekki tilheyra grunnþjónustu. Jafnframt er kallað eftir skýrum fjárhagslegum markmiðum og markvissri eftirfylgni.
Já, nú verður reksturinn réttur við og bættur til framtíðar.
Já, nú verður reksturinn réttur við og bættur til framtíðar.