Hafnarfjarðarbær hvetur til aðhalds í verðhækkunum

Fréttir

Hafnarfjarðarbær hefur biðlað til birgja sinna og samstarfsaðila að sýna aðhald við verðlagningu vöru og þjónustu á komandi misserum.

Höldum í við hækkanir

Hafnarfjarðarbær hefur biðlað til birgja sinna og samstarfsaðila að sýna aðhald við verðlagningu vöru og þjónustu á komandi misserum. Bærinn hefur sent þeim öllum bréf þar sem hvatt er til sameiginlegs átaks um verðstöðugleika. Kynnt er sú áhersla að hækkanir á gjaldskrám sveitarfélagsins fari ekki umfram 2,5%.

Í bréfinu er vísað til umræðu undanfarinna mánaða um mikilvægi þess að vinna sameiginlega að auknum verðstöðugleika og varðveislu forsendna kjarasamninga. Stjórnvöld, sveitarfélög, fyrirtæki og aðilar vinnumarkaðarins hafi verið hvött til að sýna aðhald í verð- og gjaldskrárbreytingum og miða við að hækkanir verði ekki umfram 2,5%. Að því stefni bærinn.

Saman náum við árangri

Já, Hafnarfjarðarbær hyggst leggja sitt af mörkum og mun við mótun gjaldskráa leggja áherslu á að hækkanir fari ekki umfram þessi mörk. Um leið beinir bærinn þeirri áskorun til birgja og samstarfsaðila að sýna sambærilegt aðhald.

„Þótt hver aðili verði að sjálfsögðu að taka ákvarðanir út frá eigin rekstrarforsendum teljum við að sameiginlegt átak geti skipt verulegu máli fyrir verðstöðugleika, hag heimila og fyrirtækja og fjárhag hins opinbera,“ segir í bréfinu.

Bærinn þakkar jafnframt fyrir gott og traust samstarf og lýsir þeirri von að birgjar og samstarfsaðilar sjái sér fært að styðja við þetta sameiginlega markmið.

Nú er að standa saman og tryggja stöðugleika.

 

Ábendingagátt