Jólaþorpið opnar – handverk, jólagjafir og kræsingar

Fréttir

Jólaþorpið okkar opnar núna föstudaginn 13. nóvember. Eins og við þekkjum verður Jólaþorpið sannkölluð veisla fyrir augu, eyru og bragðlauka. Þar finnum við íslenskt handverk, hönnun, gjafavörur og hátíðarkræsingar. Þar finnum við líka vini okkar og kunningja sem hafa tekið þátt í Jólaþorpinu árum saman. Við sjáum líka nýja söluaðila sem bætast í hópinn.

Jólabærinn lifnar við með Jólaþorpinu

Jólahúsin á Thorsplani verða full af spennandi vörum og jólastemningu þessa fyrstu opnunarhelgi. Já, tónninn verður sleginn og ómar allar helgar að jólum – Sem og á Þorláksmessu.

Við getum keypt handgerð kerti, íslenskt skart, leikföng, jólaskraut og fatnað í Jólaþorpinu okkar.  Svo fáum við að smakka á nýsteiktum kleinum, dönskum eplaskífum, churros og ýmsum íslenskum sælkeravörum.

Hér fyrir neðan má kynnast söluaðilunum sem verða í Jólaþorpinu fyrstu helgina, 13.–15. nóvember.

Handverk, hönnun og jólagjafir

  • Jólahús DUNDA.is DUNDA snýr aftur í Jólaþorpið og býður gestum að kynna sér fjölbreytta sköpun og handverk.
  • Jólahús KrakkaKrútts KrakkaKrútt kemur einnig aftur í Jólaþorpið með fjölbreytt úrval leikfanga og gjafavöru fyrir börn. Þar má meðal annars finna barnamyndavélar, talstöðvar, verkfærasett, dúkkur, baðleikföng, litrík sokkapör, næturljós og föndurvörur.
  • Jólahús Daleyjar kerta Mæðgurnar Þórunn Lilja og dóttir hennar Helena Daley framleiða gullfalleg handgerð kerti. Þau eru óvenjuleg og án skaðlegra efna. Kertin hafa notið vinsælda, ekki síst fyrir jólin.
  • Jólahús Agnar Icelandic og Glansverkstæðisins Ögn Icelandic og Glansverkstæðið bjóða upp á fjölbreyttar gjafavörur og jólaskraut. Þar verða meðal annars handgerðar Paper Starlights-pappírsstjörnur sem lýsa upp skammdegið og skapa hlýlega stemningu á heimilinu.
  • Jólahús Ele.mental Arts Hjá Ele.mental Arts má finna handgert skart sem sækir innblástur í náttúruna. Skartgripirnir eru meðal annars gerðir úr raunverulegum laufblöðum og náttúrulegum steinefnum sem eru varðveitt með sérstakri koparhúðunaraðferð. Hver gripur er einstakur.

  • Jólahús BlueBerry BlueBerry er fjölskyldufyrirtæki með yfir 30 ára reynslu af gjafavörum á Íslandi. Fyrirtækið sérhæfir sig í árstíðabundnum skraut- og gjafavörum og býður upp á fjölbreytt úrval jólavara. BlueBerry starfar einnig í Bretlandi og Hollandi. Þetta flotta fyrirtæki hefur verið með okkur í Jólaþorpinu frá árinu 2012.
  • Jólahús Loppuvina Fjórfættir fjölskyldumeðlimir gleymast ekki í Jólaþorpinu. Loppuvinir bjóða upp á fatnað fyrir hunda, beisli, tauma, bæli, leikföng og ýmiss konar góðgæti. Þar má finna nytsamlegar og fallegar jólagjafir fyrir hundana.
  • Jólahús Vígrúnar Vígrún býður fatnað og fylgihluti, meðal annars leðurhanska, leðurtöskur, slæður og skartgripi. Þar finnur þú einnig vörur frá Blakk.
  • Sixpensari.is jólahús Sixpensari.is mætir með hatta, sixpensara, derhúfur og fjölbreyttar gjafavörur. Þar færðu einnig snyrtivörur, sápur og handkrem, auk sérstakra jólamarkaðstilboða.

Íslenskar sælkeravörur og kræsingar á jólaborðið

  • Jólahús Íslenskrar hollustu Íslensk hollusta hefur verið fastagestur í Jólaþorpinu í að minnsta kosti 15 ár enda stolt hafnfirskt fyrirtæki. Það framleiðir vörur úr íslenskum jurtum, berjum, salti og þara. Finna má saft, safa, te, sultur og fallegar gjafapakkningar í gullfallegu jólahúsi þeirra.
  • Jólahús Háafells Geitfjárseturs Háafell í Borgarfirði hefur unnið að ræktun íslensku geitarinnar í rúm 25 ár. Þar hafa verið þróaðar fjölbreyttar afurðir úr geitamjólk og geitakjöti, auk húðvara. Þetta eru ljúffengar og einstakar vörur úr geitaafurðum – sannkölluð náttúrugjöf úr íslenskum sveitum. Gestir Jólaþorpsins geta kynnt sér meðal annars osta, kjötvörur, krem og sápur frá bænum.
  • Jólahús Biohackers Corner og Blue Haus Tvö fyrirtæki sameinast í einu jólahúsi með íslenskar sælkeravörur. Biohackers Corner framleiðir meðal annars íslenskt ghee, skírt smjör úr íslensku smjöri. Blue Haus býður upp á bakaðar kræsingar, gjafapakkningar með smákökum, hátíðarbakstur og handverksbrauð ásamt heimagerðu sælgæti og meðlæti.

  • Jólahús Helvítis Helvítis er matvælafyrirtæki sem Þórey Hafliðadóttir og Ívar Örn Hansen, betur þekktur sem Helvítis kokkurinn, stofnuðu árið 2022. Fyrirtækið framleiðir handverksmatvörur með áherslu á íslenskt hráefni og óvenjulegar bragðsamsetningar. Já, þau hafa verið með okkur síðustu ár og lýsti Ívar konu sinni sem leynikryddinu í fyrirtækinu sem framleiðir afar vinsælar sultur.

  • Jólahús Matarkompanís Matarkompaní kemur með villibráð og hátíðarkræsingar á jólaborðið enda jólin tími villibráðinnar. Finna má grafna og reykta gæs, grafna önd, gæsalifrarmús, reyktan og grafinn lax ásamt sósum og meðlæti í jólahúsinu þeirra. Vörurnar henta jafnt á veisluborðið og í sælkerajólagjafir.
  • Jólahús Laufabrauðs Stella Rögn Sigurðardóttir heldur í íslenska jólahefð með laufabrauði sem á sér langa sögu í fjölskyldu hennar. Laufabrauðsgerðin hefur verið sameiginleg fjölskylduhefð kynslóð fram af kynslóð og nú fá gestir Jólaþorpsins að njóta afrakstursins.

Ilmandi veitingar og sætar freistingar

  • Jólahús Churros Wagon Andrea Anna hefur tekið þátt í Jólaþorpinu með Churros Wagon frá árinu 2018. Hún býður upp á heita og stökka churros, velt upp úr kanilsykri og borna fram með karamellu eða Nutella. Churros Wagon hefur jafnframt hlotið viðurkenningar á Götubitahátíðinni.
  • Jólahús Turf House Franskar kartöflur frá Turf House hafa orðið að hefð hjá mörgum gestum Jólaþorpsins. Fyrirtækið snýr aftur með heitar og nýsteiktar franskar og leggur áherslu á ferskleika og góða þjónustu.
  • Jólahús Danskra eplaskífa og ristaðra mandla Anna Björnsdóttir, fyrrverandi eigandi Önnu Konditori, kemur aftur með danskar eplaskífur sem hafa notið vinsælda undanfarin ár. Eplaskífurnar eru litlar deigbollur sem eru steiktar á sérstakri pönnu og bornar fram heitar með sultu og flórsykri. Einnig verða á boðstólum sykurristaðar möndlur með kanil.

  • Hringhúsið – Brikk bakarí Brikk býður upp á nýsteiktar kleinur, nýbakaðar jólavörur og jólapylsu í miðju Jólaþorpsins. Bakaríið hyggst einnig kynna nýja matartengda jólavöru sérstaklega fyrir hátíðarnar. Og það sem margir elska mest; heitt súkkulaði með rjóma.
  • Kaffivagn á Thorsplani – Kaffi Dropi Daníel og Justyna stofnuðu Kaffi Dropa fyrr á þessu ári. Þau bjóða upp á fjölbreytta kaffihúsadrykki, meðal annars espressókaffi, matcha, kakó og kalda drykki. Kaffivagninn notar jurtamjólk og leggur áherslu á vandaða drykki. Sérstök áhersla verður á hlýja vetrar- og jóladrykki með bragði á borð við kanil, chai og piparkökur hjá þeim í Jólaþorpinu.
  • Upplifunarhúsið – Kandís, laugardag og sunnudag Kandís framleiðir handgerðan íslenskan brjóstsykur úr völdum hráefnum. Bragðtegundirnar sækja meðal annars innblástur í íslensk ber, jurtir og gamlar sælgætishefðir. Fyrir jólin verða sérstakir Jólamolar og Hátíðarmolar á boðstólum, fallega pakkaðir og tilvaldir í litlar jólagjafir.

Jólastemning fyrir alla fjölskylduna

Já, þorpið er troðfullt af draumum og góðum hugmyndum. Samt eru það ekki varningurinn sem skipar aðalsess í þorpinu okkar heldur samveran, félagsskapurinn og gleðin.

Fjölbreytt skemmtidagskrá verður alla opnunarhelgina. Hátíðleg ljósatendrun á Cuxhaven-jólatrénu verður á föstudagskvöldið klukkan 18:30 og tónlist og skemmtun setja svip sinn á miðbæinn.

Á Venusarplaninu verður tívolí með upplýstri hringekju og gestir geta einnig notið skautasvellsins við Ráðhústorg.

Jólaþorpið verður opið allar helgar fram að jólum og söluaðilar verða að hluta til breytilegir milli helga. Og ekki gleyma Þorláksmessu – þá er líka opið.

Opnunartími 

  • Föstudagur 13. nóvember kl. 17–20
  • Laugardagur 14. nóvember kl. 13–20
  • Sunnudagur 15. nóvember kl. 13–18

 

 

Ábendingagátt