Sýningardagskrá LG 2026 í Jólabænum Hafnarfirði
Það verður nóg um að vera í miðbæ Hafnarfjarðar í nóvember og desember. Samhliða stemningunni í Jólaþorpinu býður Litla gallerí…
Jólaþorpið í Hafnarfirði opnaði um síðastliðna helgi þegar ljósin voru tendruð á Cuxhaven-jólatrénu!
Jólaþorpið iðar allt af lífi og fjöri fyrir jólin og fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun. Þar er tilvalið að leita að hinni fullkomnu jólagjöf á meðan þú nýtur gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn um helgar og Grýla verður einnig á vappi um bæinn á sunnudögum. Strandgata breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið.
————————————————————–
Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 13. nóvember.
Föstudaga frá kl. 17-20
Laugardaga frá kl. 13-20
Sunnudaga frá kl. 13-18
Helliskaffi í Hellisgerði er opið miðvikudaga til sunnudaga til jóla.
Sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum í takt við opnun Jólaþorpsins.
Kl. 18 – Bæjarhátíð í Firði – verslanir opnar til kl. 20. Hafnarfjörður Barnvænt sveitarfélag – Ungmennaráð mun kveikja á Unicef hjarta í Firði.
Kl. 18:45 Söngstund með Sveinka í Jólaþorpinu
Kl. 19:15 Bæjarhátíð í Firði – Flugeldasýning frá Fjarðargötu beint á móti Firði
Kl. 14 – Gunni og Felix í Bókasafni Hafnarfjarðar, upplestur og áritun
Kl. 15 – Gunni og Felix og fjölskyldan – og börn úr Gaflóskólanum.
Kl. 13 – 15 – Jólakózystund í Bunglaowi Byggðasafnsins. Skreytum piparkökur saman, Vesturgata 32.
Jólabærinn og Jólaþorpið iða allt af lífi og fjöri fyrir jólin. Fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin á Thorsplani eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun.
Tilvalið er að leita að hinni fullkomnu jólagjöf í Jólaþorpinu á meðan notið er gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn allar helgar og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum.
Strandgata frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Það er gert til að dreifa umferð gangandi vegfaranda um miðbæinn og tryggja öryggi allra okkar góðu gesta.
Allt um jólabæinn Hafnarfjörð hfj.is/jol
Fylgdu okkur á Facebook og instagram !