Sunnudaginn 22. nóvember kl. 14 munu Styrmir Örn Guðmundsson og Heiðar Kári Rannversson, sýningarstjóri, leiða gesti um nýopnaða sýningu listamannsins, Hugrenningar, í Hafnarborg. Þá munu þeir ræða verkin á sýningunni, vinnuferli listamannsins og þær hugmyndir sem liggja að baki sýningunni.

Á sýningunni koma saman tveir þættir sem einkennt hafa listsköpun Styrmis Arnar frá upphafi: teikningin og gjörningurinn. Stórar teikningar sem orðið hafa til á síðustu tíu árum hanga úr lofti sýningarsalarins og mynda innsetningu sem áhorfendur geta hreyft sig um. Innsetningin er jafnframt sviðsmynd fyrir gjörning listamannsins, þar sem hann kannar snertiflöt milli hins kyrra og kvika.

Styrmir Örn Guðmundsson (f. 1984) vinnur með gjörninga, teikningar, skúlptúr og tónlist í listsköpun sinni, þar sem ólíkir miðlar og form fléttast saman í eina frásögn. Það sem byrjar sem teikning á pappír þróast jafnvel yfir í skúlptúr eða tónlist, sem verður svo að efniviði fyrir gjörning. Styrmir Örn stundaði nám við Gerrit Rietveld Academie og lauk framhaldsnámi frá Sandberg Instituut í Amsterdam árið 2012. Verk hans hafa verið sýnd víða á undanförnum árum, bæði hérlendis og erlendis.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

Ábendingagátt