Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar verða í Hásölum við Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 10. desember og hefjast kl. 20:00.

 

Tónleikarnir bera yfirskriftina Hjörtun okkar jóla. Efnisskráin er létt og skemmtileg, flutt verða lög og textar eftir innlenda og erlenda höfunda og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

 

Meðleikari á píanó verður Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarðar er Sara Gríms.

 

Miðasala er við innganginn, miðaverð er 4000 kr. en ókeypis er fyrir börn 12 ára og yngri. Gestum verður boðið upp á kaffi og konfekt í tónleikahléi. Sjá viðburð hér. 

Ábendingagátt