Þráinn Hauksson landslags arkitekt mætir og kynnir tillögur að mörkum svæðanna sem lagt er til að verði friðlýst. áður á dagskrá á 107 fundi en var frestað þá.
Umhverfisnefnd/Staðardagskrá 21
í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6
Ritari
- Guðjón Ingi Eggertsson Verkefnisstjóri Staðardagskrár 21
-
Almenn erindi
-
US060042 – Friðlýsingar skv. aðalskipulagi og lögum um náttúruvernd
UHN/Sd 21 þakkar Þránni fyrir kynninguna. Nefndin frestar afgreiðslu málsins. Nefndin óskar eftir því að tillögurnar verði kynntar í Skipulags- og byggingarráði. Með tilliti til aukinnar ásóknar í upplandið telur nefndin tímabært að horft verði á svæðið í heild sinni með gerð rammaskipulags.
-
0709092 – Hagsmunagæsla sveitarfélaga í úrgangsmálum
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.08.07 um hagsmunagæslu sveitarfélaga í úrgangsmálum. Skipulags og byggingarráð vísaði erindinu til umsagnar UHN/Sd 21 á 176 fundi þann 15.09.1007.
Nefndin hvetur sveitarfélagið til þátttöku í verkefninu.
-
0709235 – Staðardagskrá 21, ráðgjöf
Bréf verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 á Íslandi lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
-
0709210 – Leiðarendi, varðveisla hraunhellis, styrkbeiðni
Erindi Árna B. Stefánssonar dags. 07.09.2007 þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 250.000 vegna varðveislu hellisins Leiðarenda. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar UHN/Sd 21 á fundi 3183 þann 27.09.2007.
UHN/Sd 21 fagnar frumkvæði Árna B. Stefánssonar um verndun hellisins og mælir með því að að verkefnið verði styrkt. Nefndin óskar jafnframt eftir því að vera upplýst um framgang verkefnisins.
-
0709256 – Umhverfisþing 12-13.10.2007, náttúruvernd og líffræðileg fjölbreytni
Tveir fulltrúar UHN/Sd 21 munu sækja þingið.
-
0709069 – Suðurstrandarvegur, tillaga úr bæjarstjórn 4.sept. sl., vísað til umhverfisnefndar/Staðardagskrá 21
Verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 fer yfir málið.
UHN/Sd 21 furðar sig á því að málinu skuli ekki vísað til hennar áður en ákvörðun er tekin. Umsögn hennar hefur ekkert að segja þegar leyfi hefur þegar verið veitt og rannsóknin komin af stað. Nefndin vonar þó að frágangur Vegagerðarinnar verði ásættanlegur.
-