Lagt fram bréf, dags. 23. ágúst sl., frá skiptastjóra vegna gjaldþrotaskipta bús Gosmúrs ehf., kt. 670201-2870, með beiðni um nafnabreytingu á lóðum nr. 1,3 og 5 við Furuás.
Bæjarráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
Ritari
- Anna Jörgensdóttir ritari bæjarráðs
-
Almenn erindi
-
0708185 – Furuás 1, 3 og 5, beiðni um nafnabreytingu á lóðum.
Bæjarráð samþykkir nafnabreytinguna.
-
0708163 – Öldugata 17, skúr.
Lagt fram bréf, dags. 14. ágúst sl., frá eigendum skúrs við Öldugötu 17 með ósk um viðræður um kaup bæjarins á skúrnum.%0D%0D
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til frekari skoðunar hjá bæjarlögmanni.
-
0708162 – Norðurhella 19, beiðni um nafnabreytingu á lóðarhafa
Lagt fram bréf, dags. 20. ágúst sl., frá Lagnavirki ehf., kt. 510397-2589, með ósk um nafnabreytingu á lóðarhafa lóðarinnar. Núverandi lóðarhafi er Lagnavirki ehf. en óskað er eftir yfirfærslu á einkahlutafélagið Norðurhella ehf., kt. 490107-1500.%0D%0D
Bæjarráð samþykkir nafnabreytinguna.
-
0708149 – Smáralundur, framkvæmdir.
Málinu vísað úr framkvæmdaráði til afgreiðslu í bæjarráði vegna óskar um lausa kennslustofu tímabundið í leikskólanum Smáralundi.%0D%0D
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
-
0708063 – Skipurit Hafnarfjarðarbæjar og breytingar á skipulagi fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Bæjarráð vísar málinu til seinni umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
0708061 – ÍBH, ósk um endurskoðun 7. greinar samstarfssamnings
Íþróttafulltrúi mætti til fundarins.
Bæjarráð samþykkir að fela íþróttafulltrúa ásamt stjórnsýslu- og fjármálasviði að vinna áfram að málinu.
-
0705199 – Fjármálastjóri Hafnarfjarðarbæjar.
Lagður fram listi yfir umsækjendur í stöðu fjármálastjóra Hafnarfjarðarbæjar. Bæjarstjóri gerði grein fyrir fyrirætlan sinni að ráða Gerði Guðjónsdóttur, löggiltan endurskoðanda, í starf fjármálastjóra. %0D%0D
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn. Bæjarráð býður Gerði Guðjónsdóttur velkomna í starf fjármálastjóra og óskar henni velfarnaðar í störfum. Þá þakkar bæjarráð Sveini Bragasyni, fráfarandi fjármálastjóra, gott samstarf og gifturík störf í þágu Hafnarfjarðarbæjar í tæpa tvo áratugi og óskar honum allra heilla á nýjum vettvangi.
-
0701061 – Stuðningur við stjórnmálasamtök í Hafnarfirði.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir breyttu lagaumhverfi í tengslum við stuðning við stjórnmálasamtök.
Málinu frestað milli funda.
-
0703082 – Jafnréttisstefna Hafnarfjarðarbæjar 2007-2011.
Lögð fram drög að jafnréttisstefnu Hafnarfjarðarbæjar 2007-2011 en drögunum var vísað úr lýðræðis- og jafnréttisnefnd til umsagnar bæjarráðs.
Málinu frestað milli funda.
-
0707015 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2005-2025 Krýsuvík, beiðni um breytingu
Skipulags- og byggingarráð vísaði erindinu til umsagnar og kynningar í bæjarráði.
Bæjarráð felur skipulags- og byggingarráði að hefja vinnu við breytingar á aðalskipulagi í samræmi við samstarfsyfirlýsingu Hafnarfjarðarbæjar og Hitaveitu Suðurnesja frá 30. mars 2006.
-
0701267 – Félagslegar leiguíbúðir, sala.
Erindinu var vísað úr fjölskylduráði til bæjarráðs með tillögu um sölu á félagslegri íbúð í eigu Hafnarfjarðarbæjar að Skúlaskeiði 40.
Bæjarráð tekur undir tillögu fjölskylduráðs.
Kynningar
-
0708184 – Taflfélag Reykjavíkur, meistaradeild Evrópu 2007.
Lögð fram styrkbeiðni, dags. 23. ágúst sl., frá Taflfélagi Reykjavíkur vegna Evrópumeistaramóts skákfélaga sem haldið verður í Tyrklandi í októberbyrjun 2007.
Bæjarráð synjar erindinu.
Fundargerðir
-
0708144 – Stjórn SSH, 309. fundur, 13. ágúst 2007.
Lögð fram.
-
0708107 – Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17. ágúst sl., 93.fundur
Lögð fram.
-
0708208 – Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27. ágúst sl., 117. fundur
Lögð fram.
-
0708209 – Fundargerð skólanefndar Iðnskólans í Hafnarfírði frá 24. ágúst sl., 3. fundur.
Lögð fram.
Umsóknir
-
0708005 – Hitaveita Suðurnesja, lóðarumsókn fyrir dreifistöðvar í Hellnahrauni III.
Lögð fram umsókn Hitaveitu Suðurnesja, kt. 680475-0169, um lóð fyrir dreifistöð við Tunguhellu 28, Hellnahrauni III.%0D%0D
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar á skipulags- og byggingarsviði.
-
0708079 – Hitaveita Suðurnesja, lóðarumsókn, miðsvæði Valla.
Lögð fram umsókn frá Hitaveitu Suðurnesja, kt. 680475-0169, um lóð fyrir dreifistöð við Ásbraut 2, Miðsvæði Valla.%0D%0D
Bæjarráð samþykkir að vísa umsókninni til umsagnar á skipulags- og byggingarsviði.
-
0708201 – Heklubyggð ehf, Hellnahraun 3. áfangi, lóðarumsókn.
Lögð fram umsókn Heklubyggðar ehf., kt. 640603-2750, um lóð undir starfsemi sína í Hellnahrauni III.%0D%0D
Bæjarráð samþykkir að vísa umsókninni til umsagnar á skipulags- og byggingarsviði.
-