Rekstrar- og fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir árið 2009 lögð fram til fyrri umræðu
Hafnarstjórn
á hafnarskrifstofu
Ritari
- Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri
-
Almenn erindi
-
0810280 – Rekstrar- og fjárhagsáætlun hafnarinnar 2009
Samþykkt að taka fjárhagsáætlunina til seinni umræðu í byrjun desember n.k.
-
0702364 – 100 ára afmæli Hafnarfjarðarhafnar.
Formaður afmælisnefndar Ásta María Björnsdóttir fór yfir stöðu mála varðandi undirbúning hátíðahalda í tilefni af 100 ára afmæli hafnarinnar 2009.
-
0801261 – Vatnsafgreiðslukerfi hjá Hafnarfjarðarhöfn.
Lögð fram drög að samningi um vatnsafgreiðslukerfi hafnarinnar við Vatnsveitu Hafnarfjarðar.
Hafnarstjórn samþykkir samningsdrögin og felur hafnarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd hafnarinnar.
-
0808158 – Óseyrarbraut 29, tankur Fráveitunnar
Lögð fram hugmynd Fráveitu Hafnarfjarðar að skipulagi kring um miðlunartank Fráveitunnar á Hvaleyrarhafnarsvæðinu og hugmyndir að lóðarbreytingu á lóðunum Óseyrarbraut 29 og 31.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna áfram að þessu máli og eiga viðræður við viðeigandi aðila.
-
0703213 – Framtíðarsýn fyrir frístundabátahöfn í Fjarðarbotninum
Hafnarstjóri kynnti ný drög að framtíðarsýn fyrir Fjarðarbotninn.
-