Lýðræðis- og jafnréttisnefnd
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Ritari
- Anna Jörgensdóttir lýðræðis- og jafnréttisfulltrúi

Almenn erindi

0701205 – Nýbúaútvarp.

Lýðræðis- og jafnréttisnefnd óskar eftir upplýsingum frá Alþjóðahúsi og Flensborgarskólanum í Hafnarfirði um framkvæmd nýbúaútvarps á síðasta ári og stöðu verkefnisins í dag.

0809322 – Jafnréttisfulltrúar sviða
Lýðræðis- og jafnréttisfulltrúi gerði grein fyrir störfum jafnréttisfulltrúa sviða og fyrirhugað námskeið á vegum Jafnréttisstofu sem haldið verður fyrir jafnréttisfulltrúana í lok mars.

Lýðræðis- og jafnréttisnefnd samþykkir að greiða kostnað vegna námskeiðsins.

0710243 – Íþrótta- og æskulýðsstarf barna af erlendum uppruna, rannsókn
Lýðræðis- og jafnréttisnefnd samþykkti á fundi sínum í júní á sl. að leggja það í hendur aðgerðahóps um málefni barna innflytjenda í Hafnarfirði sem starfandi er í Hafnarfirði að leggja fram aðgerðaráætlun um aukna þátttöku barna og unglinga af erlendu bergi brotin í íþrótta- og tómstundarstarfi.

Lýðræðis- og jafnréttisnefnd óskar eftir upplýsingum um stöðu verkefnisins frá aðgerðarhópnum.

0809308 – Jafnréttisátak í íþrótta- og tómstundastarfi
Kynnt skýrsla um brottfall stúlkna í íþrótta- og tómstundastarfi. Aðgerðaáætlun lögð fram.

Rætt um skýrsluna og aðgerðaáætlun skoðuð. Nefndarmenn munu kynna sér betur innihald skýrslunnar og skoða aðgerðaáætlun betur.

0701391 – Skólaverkefni, samstarfsverkefni Hfj.bæjar, Kópavogsbæjar, Akureyrarbæjar, Jafnréttisstofu, Félagsmálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar.
Lýðræðis- og jafnréttisfulltrúi gerði grein fyrir fundi stýrihóps verkefnisins sem var í dag.