Lagt fram erindi Lögreglunnar dags.6 des s.l. þar sem lagt er til að fram fari mat á því af hálfu sveitarfélagsins hvort rétt myndi að hækka leyfilegan hámarkshraða á þeim vegum eða vegarköflum sem brotahlutfall fer yfir 30% eða, ef aðstæður þykja ekki þess eðlis að hraðahækkun sé réttmæt, að gerðar verði ráðstafanir til hraðalækkunar með hraðahindrun, þrengingu eða öðru slíku. $line$Lagðar fram hraðamælingar í Hafnarfirði 2008-2011.
Undirbúningshópur umferðarmála
í fundarherbergi framkvæmdasviðs, Norðurhellu 2
Mætt til fundar
- Sigríður Björk Jónsdóttir formaður
- Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
- Sævar Guðmundsson Fulltrúi lögreglu
Ritari
- Helga Stefánsdóttir verkfræðingur
-
Almenn erindi
-
1112053 – Niðurstöður á hraðamælingum í Hafnarfirði 2008-2011
UHU leggur til að niðurstöður mælinganna verði skoðaðr með tilliti til aðstæðna á hverjum stað sem kynntar verða í hópnum.
-
1110049 – Hellnahraun II - umferðaröryggi
Tekið fyrir að nýju.
UHU tekur undir ábendinguna en líklegt er að umferðaröryggi í hverfinu batni þegar frágangi við kanta og stéttir er lokið.
-
1110337 – Klukkuberg 11-41 - umferðaröryggi
Lagt fram bréf stjórnar húsfélagsins í Klukkubergi 11-41 þar sem vakin er athygli á hraðakstri við blokkina og óskað er eftir útbótum á þessu svæði.$line$Lögð fram hraðamæling upp Klukkuberg á móts við húsið dags 9.nóv 2011. Mesti hraði mældist 50km/klst og meðalhraðinn mældist 28 m/klst. Klukkuberg er 30km gata.
UHU samþykkir að sett verði upphækkuð gangbraut á móts við tröppurnar.
-
1110052 – Breiðvangur, umferðaröryggi
Tekið fyrir að nýju.$line$Lögð fram hraðamælin dags. 19. okt s.l. Mesti hraði inn Breiðvang 34-50 mældist 38 km/klst og meðalhraði 21 km/klst. Mesti hraði út Breiðvang 34-50 34 km/klst og meðalhraði 20 km/klst. Breiðvangur er 30 km/klst gata.
UHU teljum ekki ástæðu til aðgerða að sinni.
-
1110048 – Arnarhraun/Smyrlahraun - umferðaröryggi
Tekið fyrir að nýju.$line$Lögð fram hraðamælin dags. 5. og 6. okt s.l. Mesti hraði norður Arnarhraun við Smyrlahraun mældist 41 km/klst og meðalhraði 24 km/klst. Mesti hraði suður Arnarhraun við Smyrlahraun mældist 47 km/klst og meðalhraði 22 km/klst. Arnarhraun er 30 km/klst gata.
UHU leggur til að hindrunin sem fyrir er á gatnamótunum verði endurgerð og aðstæður síðan metnar að nýju.
-
1110051 – Norðurbraut og aðliggjandi götur, umferðaröryggi
Tekið fyrir að nýju.$line$Lögð fram hraðamælin dags. 18 okt s.l. Mesti hraði suður Norðurbraut við Nönnustíg mældist 51 km/klst og meðalhraði 26 km/klst. Mesti hraði norður Norðurbraut við Nönnustíg mældist 53 km/klst og meðalhraði 31km/klst. Lögð fram hraðamælin dags. 10 okt s.l. Mesti hraði suður Norðurbraut milli Hraunhvamms og Hraunkambs mældist 39 km/klst og meðalhraði 24 km/klst. Mesti hraði norður Norðurbraut milli Hraunhvamms og Hraunkambs mældist 54 km/klst og meðalhraði 28km/klst. Norðurbraut er 30 km/klst gata.
UHU samþykkir að sett verði upphækkuð gangbraut í grend við Nönnustíg.
-