Lögð fram skýrsla um námsferð leikskólans Hlíðarbergs til Uppsala í Svíþjóð. Ferðin var farin í febrúar 2011.
Fræðsluráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir formaður
- Helena Mjöll Jóhannsdóttir aðalmaður
- Kristinn Andersen aðalmaður
- Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir aðalmaður
- Guðlaug Sigurðardóttir varamaður
Ritari
- Guðrún Guðmundsdóttir ritari
-
Almenn erindi
-
1110308 – Námsferðir - leikskólar
-
1104364 – Skóladagatöl leikskóla 2011-2012
Lögð fram skóladagatöl leikskólanna.$line$Skóladagatöl hafa verið staðfest af öllum foreldraráðum leikskólanna.
Fræðsluráð samþykkir skóladagatöl leikskólanna enda liggur fyrir samþykki allra foreldraráða.
-
1110293 – Staðfesting skólanámskráa og starfsáætlana leikskóla
Lagðar fram skólanámskrár og starfsáætlanir leikskólanna 2010-2011.
Þróunarfulltrúi leikskóla lagði fram samantekt vegna þessa liðar.
-
1110250 – Staðfesting skólanámskráa og starfsáætlana grunnskóla
Lagðar fram skólanámskrár og starfsáætlanir grunnskólanna 2010-2011
Þróunarfulltrúi grunnskóla lagði fram samantekt vegna þessa liðar.
-
1110296 – Norrænn loftslagsdagur 2011
Lögð fram auglýsing um norræna loftslagsdaginn sem menntamálaráðherrar Norðurlandanna bjóða til þann 11.11.11.
-
0811084 – Einelti, þjóðarátak
Lagður fram tölvupóstur frá verkefnisstjóra um aðgerðir gegn einelti. Þar kemur fram að ákveðið er að 8. nóvember nk. verði dagur gegn einelti. Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti. Að verkefninu standa fjármálaráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti.
Fræðsluráð hvetur leik- og grunnskóla til að skoða gátlista og verkferla sína vegna eineltis.
-
1110227 – SSH-framtíðarhópur um menntamál og sérfræðiþekkingu
Lögð fram skýrsla verkefnahóps SSH um menntamál og sérþekkingu. Bæjarráð vísaði skýrslunni til umfjöllunar í fræðsluráði.
Sviðsstjóri sat í verkefnahópnum, hann gerði grein fyrir tillögum hópsins.$line$Málinu vísað til umfjöllunar í hópi leik- og grunnskólastjóra og verður aftur á dagskrá fræðsluráðs á næsta fundi ráðsins.
-
1110211 – Forfallakennsla
Lögð fram kvörtun foreldris vegna forfallakennslu í unglingadeild Víðistaðaskóla.
Sviðsstjóra er falið að kalla eftir upplýsingum frá skólastjórum grunnskólanna um forfallakennslu.
-
1008212 – Forvarnir á fræðslusviði
Ákvörðun um hvort kaupa eigi niðurbrot skýrslunnar
Fræðsluráð samþykkir að kaupa niðurbrot skýrslunnar. Upphæðin takist af liðnum „styrkir“.
-
1110297 – Skólaþing sveitarfélaga 2011
Skólaþing sveitarfélaga verður haldið föstudaginn 4. nóvember nk. á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu, kl. 9-16.
-
0908146 – Fjölgreinabraut
Lagður fram samningur um þróunarstyrk milli mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Hafnarfjarðarbæjar um þróun námsleiða til framhaldsskólaprófs innan ramma fjölgreinabrautar í Hafnarfirði. Samningurinn byggir á ákvæði um rekstur fjölgreinabrautar milli sömu aðila.
$line$Áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara vék af fundi kl. 10:10.
-
1110179 – Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs 2011, endurskoðun
Rekstrarstjóri fræðslusviðs kynnti endurskoðaða fjárhagsáætlun fræðsluþjónustu.
-