Lagt fram erindi frá leikskólastjóra á Álfasteini þar sem óskað er eftir tilfærslu á skipulagsdegi frá 17. nóvember til 21. október 2011.
Fræðsluráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir formaður
- Eyjólfur Sæmundsson aðalmaður
- Helena Mjöll Jóhannsdóttir aðalmaður
- Kristinn Andersen aðalmaður
- Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir aðalmaður
Ritari
- Guðrún Guðmundsdóttir ritari
-
Almenn erindi
-
1104364 – Skóladagatöl leikskóla 2011-2012
Fræðsluráð staðfestir erindið enda liggur fyrir samþykki foreldraráðs skólans.
-
0809210 – Leikskólarými, mat á þörf
Lögð fram samantekt þróunarfulltrúa leikskóla hvað varðar næsta skólaár – 2012-2013 um þörf á leikskólarými.
-
1108155 – Evrópsk lýðræðisvika 10.-16.okt. 2011
Lögð fram samantekt frá þróunarfulltrúa leikskóla samantekt um hvernig unnið verður í lýðræðisvikunni í leikskólum bæjarins.
-
1008206 – Barnaskóli Hjallastefnunnar
Lagður fram tölvupóstur, dags. 19. september 2011 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu varðandi framkvæmd samræmdra prófa.
-
1109321 – Setbergsskóli, úttekt haustið 2011
Lagt fram bréf frá mmr dags. 21. september 2011 þar sem tikynnt er ákvörðun ráðuneytisins um úttekt á Setbergsskóla haustið 2011.
-
1009025 – Skólalóðir, öryggismál
Vegna þessa liðar mæta fulltrúar frá umhverfis- og framkvæmdasviði.
Fræðsluráð þakkar Sigurði Haraldssyni, forstöðumanni fasteignafélags Hafnarfjarðar, Ismael R. David tæknifræðingi á umhverfis- og framkvæmdasviði, Birni B. Hilmarssyni, garðyrkjustjóra og Svanlaugi Sveinssyni, verkefnisstjóra viðhaldsmála sem fóru yfir öryggismál skólalóða.
-
1008212 – Forvarnir á fræðslusviði
Forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar og yfirsálfræðingur á Skólskrifstofu mæta til fundarins og fara yfir stöðuna.$line$Forvarnarfulltrúi kynnir niðurstöður rannsóknar um vímuefnaneyslu meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk í Hafnarfirði árið 2011. Rannsóknin er framkvæmd af Rannsókn og greiningu.
Geir Bjarnasyni, forvarnarfulltrúa og Eiríki Þorvarðarsyni, yfirsálfræðingi þakkað fyrir þeirra framlag til fundarins.
-
1109377 – Litla upplestrarkeppnin
Lögð fram skýrsla um Litlu upplestrarkeppnina í 4. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar skólaárið 2010-2011. Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofustjóri Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar mætir til fundarins og kynnir skýrsluna.
Ingibjörgu þakkað fyrir hennar framlag.
-