Lagt fram erindi Þórðar Sverrissonar um bókina Forskot, rit um stefnumótun.
Hafnarstjórn
á hafnarskrifstofu
Mætt til fundar
- Eyjólfur Sæmundsson formaður
- Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
- Sigurbergur Árnason aðalmaður
- Haraldur Þór Ólason aðalmaður
- Helga R Stefánsdóttir aðalmaður
Ritari
- Ína Illugadóttir skrifstofustjóri
-
Almenn erindi
-
1109118 – Forskot, bók um stefnumótun.
Hafnarstjórn samþykkir að verða ekki við erindinu.
-
0705296 – Óseyrarbraut 25, olíubirgðastöð
Formaður hafnarstjórnar greindi frá fundi sínum og hafnarstjóra með forsvarsmönnum Olíudreifingar ehf, þeim Herði Gunnarssyni framkvæmdastjóra og Auði Harðardóttur fjármálastjóra.
Hafnarstjórn samþykkir að leggja til við Bæjarstjórn Hafnarfjarðar að Bæjarstjórn samþykki að heimila Olíudreifingu ehf skil á lóðinni Óseyrarbraut 25.
-
1109147 – Hafnarreglugerð fyrir Hafnarfjarðarhöfn
Drög að hafnarreglugerð fyrir Hafnarfjarðarhöfn tekin til umræðu.
Hafnarstjórn samþykkir að leggja til við Bæjarstjórn að sett verði ný reglugerð fyrir Hafnarfjarðarhöfn samkvæmt meðfylgjandi drögum.
-
1106231 – Leki inn á Hvaleyrarbraut 28
Lagt fram erindi Gylfa Matthíassonar, Uppfyllingu, varðandi aðgerðir á lóðinni við Hvaleyrarbraut 28, vegna leka inn á lóðina.
Hafnarstjórn fellst ekki á kröfu Uppfyllingar, en leggur ríka áherslu á að gengið verði frá holæsilögnum sem orsaka vandamálið.
-