Þórður Sverrisson frá Capacent fer yfir skýrslu vinnuhóps sem fór yfir mat á tækifærum til aukinnar samvinnu eða samruna Framkvæmdasviðs og Skipulags-og byggingarsviðs. Ennfremur verður farið yfir þær stjórnsýslubreytingar er varða sviðið sem teknar voru á fundi bæjarstjórnar 29.júní 2011.
Umhverfis- og framkvæmdaráð
20. júlí 2011 kl. 08:15
í fundarherbergi framkvæmdasviðs, Norðurhellu 2
Fundur
138
Mætt til fundar
- Margrét Gaua Magnúsdóttir formaður
- Hörður Þorsteinsson aðalmaður
- Árni Stefán Jónsson aðalmaður
- Valdimar Svavarsson aðalmaður
- Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
Fundinn sátu einnig Sigurður P Harðarson, Dagur Jónsson, Sigurður Haraldsson og Helga Stefánsdóttir Framkvæmdasviði.
-
Almenn erindi
-
1004521 – Stjórnsýsla endurskoðun 2010, starfshópur
Framkvæmdaráð þakkar fyrir kynninguna. Framkvæmdaráð samþykkir að haldinn verði vinnufundur 24. ágúst varðandi áhersluatriði í umhverfismálum með tilkomu flutnings málaflokksins til sviðsins.
-
1101014 – Sorpa bs, fundargerðir 2011
Lögð fram fundargerð 287. fundar.
Lagt fram.
-