Björn B Hilmarsson garðyrkjustjóri, mæti til fundarins og kynnir starfsemina í sumar
Framkvæmdaráð
í fundarherbergi framkvæmdasviðs, Norðurhellu 2
Mætt til fundar
- Margrét Gaua Magnúsdóttir formaður
- Hörður Þorsteinsson aðalmaður
- Valdimar Svavarsson aðalmaður
- Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
- Jóhanna Marín Jónsdóttir varamaður
Ritari
- Helga Stefánsdóttir
-
Almenn erindi
-
1106139 – Garðyrkjustjóri, starfsemi sumarið 2011
Framkvæmdaráð þakkar kynninguna.
-
1101004 – Framkvæmdasvið, eftirlit fjárhagsáætlunar
Lagt fram rekstraryfirlit síðustu 4 mánuða.
Lagt fram.
-
0702036 – Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir
Lagðar fram fundargerðir Bygginganefndar nr. 95 og 96. Einnig lagt fram bréf frá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar dags. 6. júní 2011 til Bygginganefndarinnar. Gunnar Svavarsson formaður byggingarnefndar og Viðar Halldórsson formaður FH mættu til fundarins og gerðu grein fyrir málinu.
Framkvæmdaráð hefur móttekið bréf frá FH til byggingarnefndar Kaplakrika varðandi framhald byggingarframkvæmda við frjálsíþróttahúsið í Kaplakrika. Framkvæmdaráð vísar bréfinu til bæjarráðs og ítrekar að gengið verði frá húsinu með þeim hætti að það liggi ekki undir skemmdum. Valin verði hagstæðasta leið að því marki.
-
0703024 – Vatnsveita, Fagridalur rannsóknir
Fagridalur umsókn um nýtingarleyfi í framhaldi af rannsóknum.
Framkvæmdaráð samþykkir að heimila vatnsveitustjóra að sækja um nýtingarleyfi í Fagradal vegna vatnsréttinda þar.
Fundargerðir
-
1106171 – Framkvæmdaráð-heimsóknir
Farið var í heimsókn til Gámaþjónustuna og Furu.
-