Hagtak hf sækir 18.05.2011 um endurnýjun á byggingarleyfi sem var samþykkt þann 13.02.2008
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa
í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Anna Sofia Kristjánsdóttir starfsmaður
- Berglind Guðmundsdóttir starfsmaður
- Sigurður Steinar Jónsson starfsmaður
Ritari
- Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi
-
A-hluti byggingarleyfa
-
1105337 – Hvaleyrarbraut 30, endurnýjun á byggingaleyfi
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
-
11022270 – Flatahraun 5a, breyting inni.
Burger-inn ehf, sækir um leyfi til að breyta núverandi söluturni og skyndibitastað í matsölustað með heimsendingarþjónustu. Eldhús stækkað, bætt við snyrtingu. Engin breyting á útliti, burðarvirki eða skráningu. Samkvæmt teikningu Óla G.H.Þórðarsonar dagss. 08.02.11. Umsögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis liggur fyrir.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
-
1106007 – Grandatröð 5, stöðuleyfi
Ómar Imsland Grandatröð 5 óskar eftir þann 1. júní 2011 eftir stöðuleyfi fyrir tvo 20 feta gáma innan lóðar, samþykki meðeiganda í húsi liggur fyrir.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfið til eins árs. Að þeim tíma loknum fjarlægist gámarnir.
B-hluti skipulagserindi
-
1105490 – Hrauntunga 24, göngustígur
Borist hefur tölvupóstur frá Arnfríði Arnardóttur dags.25.5.11, þar sem bent er á að búið er að loka göngustíg við Hrauntungu með læstu hliði. Stígurinn er á bæjarlandi og liggur milli Hrauntungu 24 og 26. Hún óskar eftir því að stígurinn verði áfram göngufær þar sem börn fara þar í gegn á leið í skólann.
Komið hefur í ljós að stígurinn er á bæjarlandi og skv. núgildandi deiliskipulagi er stígur á þessum stað. Því er lóðarhafa skylt að fjarlægja lokað hlið.
-
1105483 – Lækjargata 10b, kvistur
Freyja Árnadóttir sækir 26.05.2011 um að setja kvist á suðurhlið hússins, einnig andýri lengt um 50cm í suður samkvæmt teikningum Aðalsteins V. Júlíussonar dagsettar 24.05.2011
Skipulags- og byggingarfulltrúi vísar erindinu til umsagnar Húsafriðunarnefndar ríkisins.
-
1105516 – Álfaskeið 16, Fyrirspurn
Pálmar Ólason leggur 31.05.11 inn fyrirspurn um að fá leyfi fyrir viðbyggingu við hús að Álfaskeiði 16. Sjá Meðfylgjandi gögn.
Skipulags- og byggingarfulltrúi vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.<BR&amp;gt;<BR&amp;gt;<BR&amp;gt;<DIV&amp;gt;<DIV&amp;gt;</DIV&amp;gt;</DIV&amp;gt;
C-hluti erindi endursend
-
1105456 – Flatahraun 5a, Breyting á innra skipulagi
Matarveislur ehf sækir um þann 24.05.2011 um breytingu á innraskipulagi á Flatahrauni 5a samkvæmt teikningum Kára Eiríkssonar dagsettar 24.05.2011. Skráningartafla barst 30.05.2011.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.<BR&amp;gt;<DIV&amp;gt;<DIV&amp;gt;<DIV&amp;gt;</DIV&amp;gt;</DIV&amp;gt;</DIV&amp;gt;
-
1105489 – Þrastarás 63, Fyrirspurn
Grímur Agnarsson Þrastarási 63 óskar eftir þann 26.05.2011 að breyta bakgarði við húsið skv. meðfylgjandi gögnum.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.<BR&amp;gt;<DIV&amp;gt;<DIV&amp;gt;</DIV&amp;gt;</DIV&amp;gt;
-
1106001 – Norðurbraut 1, byggingarleyfi
Charlotta Oddsdóttir og Sverrir Jónsson dags. 31. maí 2011 óska eftir viðbyggingu og endurbótum á Norðurbraut 1.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem það samræmist ekki skipulagi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.<BR&amp;gt;<DIV&amp;gt;<DIV&amp;gt;</DIV&amp;gt;</DIV&amp;gt;
-