Lögð fram fundargerð frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 13.04.11. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.
Skipulags- og byggingarráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Sigríður Björk Jónsdóttir formaður
- Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
- Sigurbergur Árnason aðalmaður
- Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
- Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
Ritari
- Ólafur Helgi Árnason skrifstofustjóri

Almenn erindi

SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

Lagt fram.

1005159 – Skipulags- og byggingarsvið mánaðarlegt uppgjör
Lagt fram yfirlit stjórnsýslu- og fjármálasviðs fyrir janúar og febrúar 2011.

Sviðsstjóri gerði grein fyrir vinnuskjali um yfirlit vegna skipulags- og byggingarsviðs.

SN010005 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar
Tekið til umræðu skipulag svæðis vestan Straumsvíkur sem frestað var til 4 ára í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 – 2025. Frestunin rennur út 18.05.11. Lagt fram svarbréf Skipulagsstofnunar dags. 08.04.11, þar sem fram kemur það álit að málsmeðferð skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 eigi ekki við, og þar með beri ekki að auglýsa frestunina. Bent er á 35. grein skipulagslaganna.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að fresta aðalskipulagi svæðisins enn um 4 ár skv. heimild í 33. grein skipulagslaga nr. 123/2010, og vísar málinu að öðru leyti til endurskoðunar Aðalskipulags Hafnarfjarðar sem Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti 30.06.10 að hafin skyldi vinna við. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:

“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að fresta hluta Aðalskipulags Hafnarfjarðar 2005 – 2025, svæði vestan Straumsvíkur, enn um 4 ár skv. heimild í 33. grein skipulagslaga nr. 123/2010.“

SB050584 – Reykjanesbraut , deiliskipulag
Lögð fram tillaga Landmótunar f.h. Vegagerðarinnar dags. að deiliskipulagi fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kaldárselsvegar og Krýsuvíkurvegar. Annars vegar breyting á deiliskipulagi fyrir norðurhluta vegarins, og hins vegar nýtt deiliskipulag fyrir suðurhluta vegarins.

Lagt fram.

1003470 – Strætó, innanbæjarakstur
Lögð fram skýrsla starfshóps um innanbæjarakstur. Bæjarráð vísaði skýrslunni m.a. til umsagnar skipulags- og byggingarráðs.

Skipulags- og byggingarsvið tekur undir þær áherslur sem settar eru fram í skýrslunni einkum hvað varðar mikilvægi þess að Hafnarfjarðarbær móti sér heildstæða samgöngustefnu.

Þar verði lögð áhersla á að veita góða þjónustu við börn og unglinga sem sækja skóla og frístundastarf og um leið verði vistvænar áherslur hafðar að leiðarljósi við gerð áætlunarinnar.

Í þessu sambandi er ljóst að endurskoða þarf leiðarkerfi Strætó BS.

0901069 – Ásland rammaskipulag
Sigurður Einarsson Batteríinu mætir á fundinn og kynnir rammaskipulagið.

Skipulags og byggingarráð þakkar kynninguna.

SB040347 – Umhverfisnefnd/staðardagskrá 21
Lögð fram fundargerð umhverfisnefndar/Staðardagskrár 21 frá 20.04.11.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir lið 1 í fundargerð nefndarinnar.

1104091 – AÍH, íþróttasvæði
Lögð fram greinargerð Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar dags. 2011 vegna aðstöðu til akstursæfinga.

Frestað.

1008227 – Átak í hreinsun iðnaðarsvæða á Hraunum og Hellnahraunum.
Forsvarsmaður verkefnisins Sigurður Steinar Jónsson á skipulags- og byggingarsviði gerir grein fyrir þeim árangri sem náðst hefur með verkefninu og hugsanlegu framhaldi þess.

Skipulags- og byggingarráð lýsir yfir ánægju með framgang hreinsunarátaksins og telur ljóst að það hefur haft talsverð áhrif á hreinsun lóða í bænum. Í ljósi þessa er sviðsstjóra skipulags- og byggingarsviðs falið að leita eftir áframhaldandi samstarfi við þá aðila sem komið hafa að framkvæmdinni.

1008329 – Sókn í atvinnumálum, átakshópur
Á fundi bæjarráðs þann 14.4. var samþykkt að visa tillögu átakshóps í atvinnumálum, merkt C2 til umsagnar hjá skipulags- og byggingarráði.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að leggja mat á tillöguna og gera umsögn um hana.

1004051 – Aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030
Lagt fram bréf Ingvars Þórs Gunnlaugssonar forstöðumanns tæknideildar Grindavíkurbæjar dags. 29.03.11, þar sem óskað er umsagnar Hafnarfjarðarbæjar um tillögu að Aðalskipulagi Grindavíkur 2010 – 2030.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að gera drög að umsögn.

1104346 – Hjallabraut 55, br. á deiliskipulagi
Hjallastefnan óskar eftir að breyta deiliskipulagi lóðar við Hjallabraut 55.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að ræða við umsækjanda um tillöguna.